Sögusýning í tilefni af 80 ára afmæli Landspítala opnuð í dag//
Opnuð verður á Landspítalanum í dag sögusýning í tilefni af 80 ára afmæli sjúkrahússins. Ólafur Ragnar Grímsson , forseti Íslands, opnar sýninguna í dag, þriðjudaginn 15. júní, kl. 13:30.
Alexandrína, drottning Danmerkur og Íslands, lagði hornstein að byggingu Landspítala við hátíðlega athöfn 15. júní 1926. Fyrsti sjúklingurinn var síðan lagður inn á spítalann 20. desember 1930. Á sýningunni er leitast við að varpa ljósi á aðdraganda byggingar Landspítala, fyrstu starfsárin og á listaverkaeign spítalans.
Sýningin skiptist í sex hluta sem er á göngum og í stigahúsi upp frá aðalinngangi í Kringlunni. Meðal þess sem sjá má á sýningunni eru gömul lækningaáhöld og ljósmyndir úr starfseminni frá 1933. Við opnun sögusýningarinnar verður afhjúpuð mynd af Vigdísi Magnúsdóttur fyrrverandi hjúkrunarforstjóra og forstjóra Landspítala, sem lést á síðasta ári.
Til baka
Fréttasafn
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
