Fréttir af stöðu kjaraviðræðna//
Kjarasamningar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við ríkið og aðra viðsemjendur hafa nú verið lausir í 15 mánuði. Eftir gerð stöðugleikasáttmálans í fyrrasumar var ákveðið að fresta frekari kjaraviðræðum aðila fram í ágústmánuð síðastliðinn. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, ásamt aðildarfélögum BHM, taldi þá forsendur samningaviðræðna vera að fjármálaráðuneytið upplýsti um hverjar væru áætlanir og hugmyndir ráðuneytisins um lækkun launa ríkissstarfsmanna, sem þá voru mikið ræddar. Þær upplýsingar hafa ekki fengist enn og því hafa engar samningaviðræður farið fram enn sem komið er.
Fíh hefur nú hafið undirbúning kjaraviðræðna með það að markmiði að viðræður hefjist á haustmánuðum. Kaupmáttur hjúkrunarfræðinga, eins og annarra launamanna, hefur rýrnað verulega þá mánuði sem samningar hafa verið lausir. Auk þess hafa meðal heildarlaun hjúkrunarfræðinga lækkað umtalsvert. Samkvæmt upplýsingum frá heilbrigðisráðuneytinu hafa meðallaun hjúkrunarfræðinga lækkað um 9,7% frá síðasta ársfjórðungi 2008 til fyrsta ársfjórðungs 2010. Stöðugildum hefur á sama tíma fækkað um 2,5%.
Til baka
Fréttasafn
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
