Aðalfundur 2009//
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) boðar til aðalfundar félagsins, sem haldinn verður þriðjudaginn 12. maí næstkomandi á Grand Hótel við Sigtún í Reykjavík.
Aðalfundur félagsins er opinn félagsmönnum með fulla aðild og fagaðild. Til að öðlast atkvæðisrétt á aðalfundinum þurfa félagsmenn að skrá sig eigi síðar en mánudaginn 4. maí næstkomandi. Þeir félagsmenn sem ekki hafa nettengingu geta snúið sér til skrifstofu félagsins og skráð sig símleiðis.
Félagmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn og til að taka virkan þátt í umræðum og ákvarðanatöku á fundinum. Nú gefst einstakt tækifæri til að hafa áhrif á stefnu og störf félagsins.
Athygli er vakin á því að í lok aðalfundar fara fram styrkveitingar úr B-hluta Vísindasjóðs. Þá stendur fræðslunefnd félagsins fyrir veggspjaldakynningu á fundarstað í tilefni alþjóðadags hjúkrunarfræðinga.
