Forsíða / Deildir Fíh / Fagdeildir / Hjúkrun í fyrirtækjum

Fagdeild hjúkrunarfræðinga í fyrirtækjum

Starfsvettvangur hjúkrunarfræðinga getur verið mjög margbreytilegur og einskorðast ekki við hefðbundnar heilbrigðisstofnanir.


Dæmi um starfsvettvang sem hjúkrunarfræðingar hafa valið að starfa á eru: Heildsölur, lyfjafyrirtæki, erfðafyrirtæki, hugbúnaðarfyrirtæki, ráðgjafafyrirtæki, fjölmiðlar, hjúkrunarþjónustur auk starfa hjá ráðuneytum, við kennslu og við aðrar ríkisreknar stofnanir.

Hér verður lítillega kynnt störf hjúkrunarfræðinga hjá einkaaðilum og jafnframt kynntir nokkrir hjúkrunarfræðingar sem hafa valið sér starfsvettvand utan hefðbundinna heilbrigðisstofnana.

Við hvað geta hjúkrunarfræðingar starfað hjá einkaaðilum?

Heildsölur

 
Starf sérfræðings við sölumennsku hjá einkafyrirtæki er í senn krefjandi, sjálfstætt og skemmtilegt starf. Starfið byggir á menntun og reynslu hjúkrunarfræðingsins og snýst um að markaðssetja og selja sérhæfðar vörur til einstaklinga og heilbrigðisstofnana. Störf in felast m.a. í að:

  • Útbúa kynningarefni og fræðslubæklinga
  • Veita persónulega kynningu og ráðgjöf
  • Halda kynningarfundi og ráðstefnur

Einnig er krafist virkrar símenntunar, sem felst bæði í því að

  • Sækja fundi innan fyrirtækisins
  • Ráðstefnur og námskeið innanlands og utan
  • Með því að fylgjast með útgefnu efni um vöruna.

Starfið kerfst sérhæfingar, sjálfstæðis og skipulagningar og þess er krafist að starfsmaður hafi góða og víðtæka þekkingu á þeirri vöru sem hann er að selja.

Erfða og líftæknifyrirtæki
 
Hjá erfða- og líftæknifyrirtækjum felst starf hjúkrunarfræðinga m.a. í stjórnun á klínískum hluta erfðarannsókna. Í þessu felst m.a.

  • Skipulag verkefna og verkefnastjórnun
  • Samskipti við samstarfsaðila
  • Samskipti við þátttakendur
  • Miðlun upplýsinga til þátttakenda rannsókna
  • Öflun gagna fyrir erfðarannsóknir, svo sem blóðsýna og heilbrigðisupplýsinga
  • Ráðgjöf

Yfirleitt halda hjúkrunarfræðingar utan um rannsókn á ákveðnum sjúkdómi eða ákveðinn hluta rannsóknar. Hjjúkrunarfræðingar annast þátttakendur, veita þeim upplýsingar um rannsóknina, halda utan um ættartengsl þátttakenda, aðstoða við svörun spurningalista, annast blóðtöku og eru tengiliður. Þátttakendur koma ýmist í þjónustuver, eða farið er heim til þeirra, á sjúkrahús eða aðrar stofnanir ef þannig ber við.

Í þessu starfi nýtist hjúkrunarmenntunin vel, einkum við miðlun upplýsinga og fræðslu til þeirra sem haft er samband við út af rannsókninni. Nauðsynleg þekking og hæfni:

  • Góð þekking á þeim sjúkdómum sem verið er að rannsaka , orsök, afleiðingu, meðferð
  • Persónuvernd og öryggi í meðferð upplýsinga.
  • Færni í samskiptum
  • Hæfni til að miðla uplýsingum og veita ráðgjöf
  • Skipulagshæfileika
  • Sjálfstæð vinnubrögð

Erfðatækni og upplýsingatækni haldast oft í hendur í erfða- og líftæknifyrirtækjum. Þess vegna geta hjúkrunarfræðingar sem vinna hjá fyrirtækjum sem sinna erfðarannsóknum einnig unnið að undirbúningi að upplýsingavæðingu heilbrigðisupplýsinga, þróun og prófun á hugbúnaði sem ætlaður er til notkunar við skráningu á heilsufarsupplýsingum, ýmis þróunarverkefni sem varða viðmót hugbúnaðar, hugmyndavinnu um þróun og framfarir í upplýsingatækni í heilbrigðiskerfinu, hvort sem það snýr að heilbrigðisstofnunum, sjúklingum, rannsóknum eða kennslu og ýmsa aðra sérfræðivinnu sem tengist notkun upplýsingatækni í heilbrigðiskerfinu.

Margir hjúkrunarfræðingar sem vinna hjá erfðafyrirtækjum hafa aflað sér framhaldsmenntunar á sviði upplýsingatækni, fræðslu, ráðgjafar, stjórnunar og rannsókna. (Sjá nánar um störf hjúkrunarfræðinga í upplýsingatækni)

Hjúkrunarfræðingar í upplýsingatækni geta starfað víða, hjá heilbrigðisstofnunum , hjá hugbúnaðarfyrirtækjum, við ráðgjöf, hjá erfðafyrirtækjum, (sjá nánar um störf hjúkrunarfræðinga í upplýsingatækni)

Hjúkrunarþjónustur


Hjúkrunarfræðingar geta starfað sjálfstætt og haft samning við Tryggingastofnun ríkisins og einnig starfað hjá fyrirtækjum sem bjóða heilbrigðisstofnunum lausn á tímabundnum mönnunarvanda. Þetta fyrirkomulag býður upp á meiri sveigjanleika í starfi og betri kjör.

Fjölmiðlar og netmiðlar

Hjúkrunarfræðingar hafa starfað við þáttagerð og heilbrigðisráðgjöf á ljósvakamiðlum og á netmiðlum

Ráðgjöf


Ráðgjafastörf hjúkrunarfræðinga á almennum markaði geta beinst að heilbrigðisráðgjöf fyrir einstaklinga og fyrirtæki og ráðgjöf í stefnumótun, rekstri og stjórnun fyrir heilbrigðisstofnanir og heilbrigðisyfirvöld



Byggir á LiSA - Eskill, Sharepoint, Veflausnir og Vefumsjónarkerfi