Hjúkrunarþing 2010//

 

 

Stefna Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga í hjúkrunar- og heilbrigðismálum

Hjúkrunarþing Fíh er að þessu sinni helgað stefnu félagsins í hjúkrunar- og heilbrigðismálum. Hópur hjúkrunarfræðinga hefur undir formennsku Vigdísar Hallgrímsdóttur hjúkrunarfræðings og verkefnastjóra unnið að endurgerð stefnunnar sem nú er lögð fyrir þingið til faglegrar skoðunar og umfjöllunar.

Á þinginu verður unnið í 6 hópum og velur hver þátttakendi sér ákveðinn hóp til að vinna í. Hópstjóri leiðir vinnuna í hverjum hópi. Hverjum hóp er falið að fjalla um einn þátt eða kafla í stefnu félagsins og koma með innlegg og faglegar athugasemdir eftir því sem við á. Í lok þingsins skila hóparnir niðurstöðum sínum til stefnumótunarnefndarinnar sem mun vinna með þær áfram. Stefna Fíh í hjúkrunar- og heilbrigðismálum mun síðan verða lögð fyrir aðalfund félagsins 19. maí 2011 til samþykktar eða synjunar.

Fíh hvetur hjúkrunarfræðinga sem vilja hafa áhrif á stefnu félagsins í hjúkrunar- og heilbrigðismálum að mæta. Stefnudrögin er að finna hér og eru þátttakendur hvattir til að vera búnir að kynna sér þau vel fyrir þingið.

Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á hjúkrunarþingið og í einn vinnuhóp fyrir hádegi fimmtudaginn 11. nóvember 2010.

 

 

 

Undirbúningur og umsjón

Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Aðalbjörg J. Finnbogadóttir
Hjúkrunarfræðingur
Sviðsstjóri fagsviðs
Sími: 540 6403