Námskeiðaskrá//
Bráðahjálp barna.
Bráðaskólinn býður í samvinnu við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga upp á námsskeið í bráðahjálp barna sem er sérstaklega sniðið að þörfum hjúkrunarfræðinga. Fram fer kennsla og þjálfun í viðbrögðum við bráðaaðstæðum þar sem börn eiga í hlut, m.a. slysum, bráðum veikindum og endurlífgun.
Námskeið um sár og sárameðferð
Námskeið í samvinnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Guðbjargar Pálsdóttur hjúkrunarfræðings MS Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði sárgræðslu svo sem lífeðlisfræði sárgræðslu og þá þætti sem helst hafa áhrif sárgræðsluferlið.
Veljum vellíðan
Fagdeild heilsugæsluhjúkrunarfræðinga skipuleggur alhliða heilsunámskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem vilja efla eigin heilsu og efla heilsuhvatningu í starfi til að styðja skjólstæðinga og almenning til heilsusamlegs lífs. Þetta námskeið er liður í undirbúningsvinnu deildarinnar fyrir heilsueflingarverkefnið „Hreysti 2020“.
Ofbeldi á heilbrigðisstofnunum – orsök, viðbrögð og afleiðingar
Farið verður yfir hvers vegna fólk sem leitar til heilbrigðisþjónustunnar sýnir ofbeldi eða árásargjarna hegðun, hvernig hægt er að bregðast við og hugsanlega koma í veg fyrir slíka hegðun og hvaða afleiðingar hún getur haft á starfsfólk. Á námskeiðinu verður fyrirlestur, umræður og sýnikennsla á einföldum aðferðum til að róa reiða og spennta einstaklinga.
Réttindi sjúklinga
Í námskeiðinu er farið yfir réttindi sjúklinga og ábyrgð þeirra á eigin heilsu út frá lögum og reglugerðum. Farið er yfir hvernig réttindamál sjúklinga standa í dag í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Trúnaðarmannanámskeið
Námskeið sérstaklega ætlað fyrir nýja og óreynda trúnaðarmenn
Við starfslok
Markmið með námskeiðinu er að auka þekkingu þeirra hjúkrunarfræðinga sem eru að nálgast starfslok eða nýlega hættir störfum á réttindum og möguleikum sínum við starfslok og efla þá til að takast á við þær breytingar sem þeim fylgja.
Námskeið um sár og sárameðferð á Akureyri
Námskeið í samvinnu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Guðbjargar Pálsdóttur hjúkrunarfræðings MS Langvinn sár eru stórt heilbrigðisvandamál, einkum meðal aldraðra. Það að vera með langvinnt sár hefur umtalsverð áhrif á daglegt líf einstaklinga og þau eru kostnaðarsöm fyrir samfélagið. Við meðferð sára er mikilvægt að kunna skil á eiginleikum þeirra fjölda umbúða, skolvökva og annarra hjálpartækja sem völ er á. Grundvallaratriðið er þó að greina undirliggjandi orsök sáranna og meðhöndla hana.
Samskipti Traust- hugrekki- nærvera -ábyrgð
Tveggja daga námskeið þar sem áhersla er lögð á þau grundvallaratriði sem gerast í hugarheimi okkar þegar við eigum í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Útkoman verður betri samskipti þar sem traust og nærvera er undirstaða samskiptanna.
Hér fyrir neðan eru ýmis námskeið sem henta hjúkrunarfræðingum. Námskeiðin eru kynnt af þeim sem halda þau og eru ekki á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga nema það sé tekið sérstaklega fram.
Þjónusta við blinda og sjónskerta einstaklinga
Endurmenntun HÍ - Í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga
Skráningarfrestur til 07. feb. 2012 Lesa meira...
Saga, stofnanir og ákvarðanataka innan ESB
Félag forstöðumanna ríkisstofnana í samvinnu við Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ
bjóða upp á námskeið fyrir stjórnendur og starfsfólk stjórnsýslunnar og opinberra stofnana (einnig ætlað starfsfólki sveitarfélaga)
Skráningarfrestur til 15. feb. 2012 Lesa meira...
Anxiety disorders, theory and practice
Endurmenntun HÍ - Kennt er á ensku.
This 2 day workshop will provide an introduction to using CBT for anxiety disorders with specific focus on the treatment of Panic Disorder, Social Phobia, OCD & Health Anxiety.
Skráningarfrestur til 16. feb. 2012 Lesa meira...
Sálgæsla barna og unglinga
Endurmenntun HÍ - Markmið námskeiðsins er að veita fólki innsýn inn í sorg barna og unglinga sem og áföll. Einkum verður fjallað um sorg og áföll sem tengjast ytri atburðum sbr. dauðsföllum og skilnuðum og hvaða þættir hafa áhrif á úrvinnslu barna og unglinga.
Skráningarfrestur til 17. feb. 2012 Lesa meira...
Námsstefna um verkjameðferð
Mælitæki – Meðferð - Árangur
Dagana 16. og 17. mars verður haldin námsstefna um verkjameðferð á Reykjalundi
Námsstefnan er ætluð læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraliðum, sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfum, sálfræðingum, félagsráðgjöfum og öðru fagfólki sem í starfi sínu mætir einstaklingum með langvinna verki
Skráningarfrestur til 20. feb. 2012 Lesa meira...
Námskeið fyrir stjórnendur og aðra starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar sem vilja fá betri yfirsýn yfir þann lagaramma sem þeir starfa eftir
Fjallað er um stjórnkerfi, skipulag og stefnumörkun í íslenskri heilbrigðisþjónustu og hvernig eftirliti og kröfum til gæða þjónustunnar og heilbrigðisstarfsmanna er háttað. Fjallað um hvernig brugðist er við mistökum í heilbrigðisþjónustu.
Skráningarfrestur til 22. feb. 2012 Lesa meira...
Heilinn. Uppbygging, starfsemi, sjúkdómar og greining
Endurmenntun HÍ - Námskeiðið er í samvinnu við Félag lífeindafræðinga. Námskeiðið er ætlað fagfólki á heilbrigðissviði.
Skráningarfrestur til 29. feb. 2012 Lesa meira...
Vakandi athygli (gjörhygli) og innsæ íhugun
Endurmenntun HÍ - Námskeiðið er öllum opið en einkum ætlað sálfræðingum og öðrum fagaðilum sem fást við meðferð og ráðgjöf.
Á síðustu árum hafa sjónir sálfræðinga beinst í æ ríkari mæli að því hvað meðferðarsambandið á stóran þátt í árangri meðferðar.
Skráningarfrestur til 06. mar. 2012 Lesa meira...
Samtalsaðferðir í hugrænni atferlismeðferð
Endurmenntun HÍ - Ætlað fagfólki í heilbrigðis- og félagsþjónustu, kennurum, þroskaþjálfum og náms- og starfsráðgjöfum. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti nýtt sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í viðtölum og skilgreiningu á vanda.
Skráningarfrestur til 14. mar. 2012 Lesa meira...
Chronic pain, chronic illness
Endurmenntun HÍ - Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).
Skráningarfrestur til 22. mar. 2012 Lesa meira...
HypnoBirthing® Teaching women and their birth companions the way to a more comfortable birthing
Endurmenntun HÍ - Í samvinnu við Ljósmæðrafélag Íslands
Skráningarfrestur til 27. mar. 2012 Lesa meira...
Næring og vökvajafnvægi
Endurmenntun HÍ - Rannsóknir síðustu ára hafa greint frá hárri tíðni vannæringar meðal sjúklinga á sjúkrahúsum og á hjúkrunarheimilum. Vannæring og þ.m.t vökvaskortur veldur hægari bata, minnkaðri sjálfsbjargargetu, auknum streituviðbrögðum, aukinni tíðni á legusárum og eykur hættu á sýkingum.
Skráningarfrestur til 10. apr. 2012 Lesa meira...
Health anxiety
Endurmenntun HÍ - Vinnustofa í samstarfi við Félag um hugræna atferlismeðferð og Oxford Cognitive Therapy Centre (OCTC).
Skráningarfrestur til 09. maí 2012 Lesa meira...
