Orlofssjóður//

Útilegukortið 2010 og Veiðikortið 2010 er til sölu á orlofsvefnum undir liðnum „Afsláttarávísanir“

Eftir að greitt hefur verið fyrir kortið er það sent í pósti til viðkomandi.  Athugið samt að skrifstofa félagsins er lokuð frá 12. júlí til 3. ágúst þá er ekki hægt að senda kortin í pósti.

Breyttar úthlutunarreglur  Punktastýrð úthlutun hófst 14. mars 2010 kl. 24:00 á miðnætti

 
Orlofsstyrkir eru ekki í boði lengur.

 

Til að komast inn á vef orlofssjóðsins er valin sjálfsafgreiðsla. Þar þurfa hjúkrunarfræðingar að slá inn eigin kennitölu og netfang. Vefurinn er lokaður öðrum en sjóðsfélögum. Sjóðsfélagar eru hjúkrunarfræðingar sem starfa hjá vinnuveitendum og sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðingar sem greiða í orlofssjóðinn. Hver sjóðsfélagi ávinnur sér 1 punkt fyrir hvern unninn mánuð á ári. Eftirlaunaþegar njóta sömu réttinda og starfandi hjúkrunarfræðingar. 

Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að skoða punktastöðu sína á orlofsvefnum. Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu félagsins á netfangið hjukrun@hjukrun.is ef þið hafið athugasemdir við orlofspunktaeign ykkar. 

 

Reglur um úthlutun – punktastýrð úthlutun

Punktastýrð úthlutun fer eftir orlofspunktaeign félagsmanna. Punktastýrð úthlutun felur í sér að þeir félagsmenn, sem hafa áunnið sér flesta orlofspunkta, þ.e. 112-230 punkta, geta byrjað að bóka á orlofsvefnum 14. mars kl. 24:00 á miðnætti. Þeir geta bókað og staðgreitt öll vikuleigutilboð í sumar.

21. mars kl. 24:00 á miðnætti geta síðan þeir sem hafa 82-230 punkta byrjað að bóka, o.s.frv.  Frá og með 11. apríl geta síðan allir félagsmenn bókað það orlofshúsnæði sem er laust á orlofsvefnum, óháð punktastöðu. Þessi breyting ætti að vera mun skilvirkari fyrir alla.

 

Punktastýrð úthlutun er framkvæmd á eftirfarandi hátt:

Orlofsvefurinn hefur verið stilltur þannig að einungis þeir sem eiga tilskilinn fjölda orlofspunkta komast inn á orlofstímabilið fyrir vikuleigu (júní – júlí og ágúst) til að bóka á neðangreindum dögum:

 

14.  mars kl. 24:00 geta þeir sem eiga 112-230 punkta bókað og greitt fyrir viku

21.  mars kl. 24:00 geta þeir sem eiga 82-230 punkta bókað og greitt fyrir viku

28.mars  kl. 24:00 geta þeir sem eiga 2-230 punkta pantað og greitt fyrir viku

4.  apríl kl. 24:00 geta eftirlaunaþegar bókað og greitt fyrir viku

11. apríl kl. 24:00 geta allir bókað óháð punktastöðu og greitt fyrir viku

 

Punktafrádráttur:

Við hverja úthlutun eru dregnir frá punktar.

Tímabilið 28. maí til 11. júní eru teknir 20 punktar í frádrátt

Tímabilið 18. júní til 6. ágúst eru teknir 30 punktar í frádrátt

Tímabilið 13. ágúst til 27. ágúst eru teknir 20 punktar í frádrátt

 

 

 

 

 

Ólöf Sigurðardóttir
Formaður

Birna Jónsdóttir

Guðrún Ágústsdóttir

K. Hjördís Leósdóttir

Ingibjörg Rósa Friðbjörnsdóttir

Soffía Sigurðardóttir
Starfsmaður sjóðsins






Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til sjóðsins