Vinnusmiðja - Ofbeldi á heilbrigðisstofnunum – orsök, viðbrögð og afleiðingar//
Námskeiðslýsing: Farið verður yfir hvers vegna fólk sem leitar til heilbrigðisþjónustunnar sýnir ofbeldi eða árásargjarna hegðun, hvernig hægt er að bregðast við og hugsanlega koma í veg fyrir slíka hegðun og hvaða afleiðingar hún getur haft á starfsfólk. Á námskeiðinu verður fyrirlestur, umræður og sýnikennsla á einföldum aðferðum til að róa reiða og spennta einstaklinga.
Umsjón og leiðbeinandi: Jón Snorrason geðhjúkrunarfræðingur M.Sc., deildarstjóri á öryggis- og réttargeðdeildarsviði LSH og leiðbeinandi í viðbrögðum við ofbeldi.
Skoða nánar
Til baka
