Álitsgjafar Fíh//
Álitsgjafar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Tilgangur: Koma á fót hópi hjúkrunarfræðinga sem gefa kost á sér til álitsgjafar fyrir hönd félagsins, á ýmsum sviðum hjúkrunar.
Skilgreining: Álitsgjafi er sérfræðingur í hjúkrun eða hjúkrunarfræðingur með meistara eða doktorspróf og sérþekkingu á ákveðnu sviði hjúkrunar. Hann gefur kost á sér til starfans sem einstaklingur.
Starfssvið: Álitsgjafi veitir, að beiðni Fíh, álit á ákveðnum málum sem tengjast sérsviði hans s.s. á frumvörpum, þingsályktunum og öðrum stefnumótandi tillögum er lúta að heilbrigðismálum og hjúkrun. Hann tekur einnig þátt í umræðum um hjúkrunar- og heilbrigðismál í fjölmiðlum að ósk Fíh. Hægt er að mynda teymi álitsgjafa um ákveðin málefni.
Þóknun: Samið skal um þóknun fyrirfram. Greiðslur miðast við að lágmarki 2 vinnustundir og að hámarki 20 vinnustundir og taka mið af launum sérfræðinga í hjúkrun. Greitt er fyrir álitsgerðir sem skilað er á skýrsluformi. Ekki er greitt fyrir munnleg álit.
Ferli:
• Formaður eða sviðstjórar Fíh óska eftir áliti álitsgjafa á viðkomandi sérsviði.
• Samið er við viðkomandi álitsgjafa í hvert skipti um umfang álitsgerðar, skiladag og þóknun.
Meðferð álits frá álitsgjafa:
• Félagið getur notað álitsgerðina í heild, hluta hennar eða ekki án frekari heimildar álitsgjafa.
• Álitsgjafi er höfundur álitsgerðar. Tryggja skal höfundarétt álitsgjafa.
• Ef leitað er álits tveggja eða fleiri sérfræðinga í hjúkrun skal formaður Fíh taka saman álitin og vinna upp úr þeim umsögn Fíh.
• Umsagnir á vegum Fíh skulu samþykktar af stjórn félagsins eða framkvæmdaráði.
• Formaður eða sviðstjórar Fíh senda umsögnina til álitsbeiðanda og afrit af henni til álitsgjafa sem unnu álitið.
• Umsögn félagsins skal birt á vefsvæði félagsins.
