Heilbrigðiskerfið og þjónustan//
Ályktun um áhrif og hlutverk hjúkrunarfræðinga í heilbrigðiskerfinu á Íslandi
Hjúkrunarfræðingar krefjast þess að skipulag heilbrigðisþjónustu verði endurskoðað og bjóða fram nýjar aðferðir við umbætur á öllum stigum heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Lesa meira...
Ályktun um styrk hjúkrunarfræðinga
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 19. maí 2011 hvetur stjórnvöld til að nýta krafta og þekkingu stéttarinnar enn betur en nú er gert, til hagsbóta fyrir íslensku þjóðina.
Hjúkrunarfræðingar eru stærsta heilbrigðisstéttin á Íslandi. Menntun þeirra er víðtæk og tekur á heilbrigði og veikindum einstaklinga.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um niðurskurð á heilbrigðisstofnunum
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) mótmælir harðlega þeim mikla niðurskurði á heilbrigðisstofnunum sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga 2011. Stjórnin varar við þeim alvarlegu afleiðingum sem svo miklar og bráðar breytingar á heilbrigðisþjónustunni munu hafa fyrir alla landsmenn.
Lesa meira...
Ályktun til heilbriðisráðherra frá stjórn 2010 um enduruppbyggingu
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 27. maí 2010 leggur áherslu á að við enduruppbyggingu íslensks samfélags beri að huga að heilsu og vellíðan ásamt góðu heilbrigðiskerfi.
Stjórnvöld eru í lykilaðstöðu til að móta heilbrigðiskerfið að þörfum þessa nýja samfélags
Lesa meira...
Ályktun til forstjóra Lýðheilsustöðvar 2010
Aðalfundur Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 27. maí 2010 skorar á stjórnvöld að finna sameinaðri stofnun Lýðheilsustöðvar og Landlæknisembættis nafn sem endurspegli verkefni hennar, lýsi hlutverki hennar og er hlutlaust gagnvart starfsstéttunum þrjátíu og tveimur sem stofnunin sér um leyfisveitingar til og hefur eftirlit með
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um breytingar á heilbrigðiskerfinu
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar stjórnvöld við að fara of geyst í breytingar á heilbrigðiskerfinu og óttast að við það skerðist þjónusta við sjúklinga umtalsvert og dýrmæt sérþekking starfsmanna tapist
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um niðurskurð á fjárveitingum til heilbrigðisstofnana
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um og vernda núverandi heilbrigðiskerfi við þær samfélagsaðstæður sem þjóðin tekst á við um þessar mundir. Ljóst er að fjöldi landsmanna mun verða fyrir atvinnumissi og verulegu fjárhagstjóni.
Lesa meira...
Ályktun Hjúkrunarþings 2008 um að standa vörð um heilbrigðiskerfið
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 6. og 7. nóvember 2008 hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um heilbrigðiskerfið við þær samfélagsaðstæður sem nú eru uppi.
Lesa meira...
Ályktun hjúkrunarþings um heilbrigðiskerfið
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 6. og 7. nóvember 2008 hvetur stjórnvöld til að standa sérstakan vörð um heilbrigðiskerfið við þær samfélagsaðstæður sem nú eru uppi.
Lesa meira...
Ályktun um aukna þátttöku sjúklinga í kostnaði
Hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, haldið í Reykjavík 5. nóvember 2004, mótmælir harðlega öllum áætlunum um að auka kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni frekar en orðið er og hvetur stjórnvöld til að endurskoða núverandi greiðslukerfi.
Lesa meira...
Ályktun hjúkrunarþings um kostnaðarþátttöku sjúklinga
Hjúkrunarþing haldið í Reykjavík 5. nóvember 2004 mótmælir harðlega öllum áætlunum um að auka kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni frekar en þegar er orðið og hvetur stjórnvöld til að endurskoða núverandi greiðslukerfi.
Lesa meira...
Ályktun fulltrúaþings um eflingu geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni
Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið dagana 15. og 16. maí 2003 hvetur íslensk heilbrigðisyfirvöld að efla geðheilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni.
Lesa meira...
