26.04.2011

Ályktun stjórnar Fíh um kjaraviðræður Fíh og ríkis

Þann 31. mars 2009 runnu út samningar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs. Þeir samningar tóku gildi um mitt ár 2008 og hafa hjúkrunarfræðingar því ekki fengið kjarasamningsbundnar hækkanir í tæp þrjú ár og verið samningslausir í rúm tvö ár.
Lesa meira...

12.05.2009

Ályktun aðalfundar Fíh um samninga við sjálfstætt starfandi - heilbrigðisráðherra 2009

Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 12. maí 2009, hvetur stjórnvöld til að ganga til samninga við hjúkrunarfræðinga sbr. lög um heilbrigðisþjónustu frá 1. september 2007, þar sem kveðið er skýrt á um heimild ráðherra til að semja um og bjóða út bæði rekstur og kaup á heilbrigðisþjónustu.
Lesa meira...

12.05.2009

Ályktun aðalfundar Fíh um kjarasamninga - fjármálaráðherra

Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 12. maí 2009, hvetur stjórnvöld til þess að ljúka sem fyrst gerð kjarasamnings við félagið. Við þær efnahagsaðstæður sem þjóðin glímir nú við er mikilvægara en nokkru sinni að festa sé í kjaramálum.
Lesa meira...

25.08.2008

Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga vegna kjaradeilu ljósmæðra

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur undir kröfur Ljósmæðrafélags Íslands um aukið verðmat á háskólanámi. Stjórn Fíh minnir á fyrirheit þau sem sett voru fram í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um jafnrétti þar sem segir m.a.
Lesa meira...

29.05.2008

Ályktun trúnaðarmanna um kjaramál 2008

Trúnaðarmenn lýsa yfir fullu trausti og stuðningi við samninganefnd Fíh og ítreka að samningsumboð Fíh verði ekki framselt til annarra né frá því tekið.
Lesa meira...

22.05.2008

Ályktun aðalfundar um kjarasamninga 2008

Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) fagnar því að nú sé að þokast í samningsátt við gerð nýs kjarasamnings við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs.
Lesa meira...

08.05.2007

Ályktun fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 7. og 8. maí 2007 um sjálfstæðan rekstur hjúkrunarfræðinga

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar þeim möguleikum til sjálfstæðs rekstrar sem hjúkrunarfræðingar fá með nýjum lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007.
Lesa meira...

08.05.2007

Ályktun fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 7. og 8. maí 2007 um hjúkrunarrými og mönnun

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga fagnar áformum stjórnvalda um fjölgun hjúkrunarrýma fyrir aldraða um 375 rými á næstu árum.
Lesa meira...

08.05.2007

Ályktun fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 7. og 8. maí 2007 um manneklu í hjúkrun

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir yfir verulegum áhyggjum vegna fyrirsjáanlegs skorts á hjúkrunarfræðingum
Lesa meira...

08.05.2007

Ályktun fulltrúaþings Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 7. og 8. maí 2007 um hækkun launa hjúkrunarfræðinga

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga skorar á fjármálaráðherra að veita auknu fé til heilbrigðisstofnana svo hægt sé að fullnýta ákvæði gildandi kjarasamninga og hækka laun hjúkrunarfræðinga.
Lesa meira...

16.05.2003

Ályktun fulltrúaþings Fíh um úttekt á launamun karla og kvenna

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 15. og 16. maí 2003 krefst þess að ríkið láti nú þegar framkvæma úttekt á launamun karla og kvenna starfandi hjá stofnunum sínum. Sérstaklega verði skoðaðar og bornar saman mismunandi starfsstéttir með mikinn meirihluta karla annars vegar og mikinn meirihluta kvenna hins vegar.
Lesa meira...