Ályktun stjórnar Fíh um breytingar á vaktafyrirkomulagi á skurðstofum LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) skorar á stjórnendur Landspítala að fresta nú þegar fyrirhuguðum breytingum á vaktafyrirkomulagi hjúkrunarfræðinga á skurð- og svæfingadeildum spítalans og afstýra þannig því neyðarástandi sem skapast ef stærstur hluti skurð- og svæfingahjúkrunarfræðinga lætur af störfum um næstu mánaðarmót.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um niðurskurð fjárveitinga til LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við þeim alvarlegu afleiðingum sem stórfelld skerðing á fjárframlögum til Landspítala, samkvæmt nýframlögðu fjárlagafrumvarpi, felur í sér. Undanfarin ár hefur Landspítalanum verið gert að hagræða svo í rekstri að nú er komið að þolmörkum.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um frekari niðurskurð á Landspítala
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur undir með forstjóra Landspítala að nóg sé komið í niðurskurði til sjúkrahússins. Landspítali er sjúkrahús allra landsmanna og gegnir auk þess veigamiklu hlutverki sem háskólasjúkrahús.
Lesa meira...
Ályktun aðalfundar Fíh 12. maí 2009 um LSH
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 12. maí 2009, lýsir fullum stuðningi við framkomnar tillögur Huldu Gunnlaugsdóttur forstjóra LSH um byggingu nýs Landspítala.
Lesa meira...
Ályktun aðalfundar Fíh um nýbyggingu LSH
Aðalfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga lýsir ánægju með byggingu nýs Landspítala.
Lesa meira...
Ályktun aðalfundar Fíh um rekstrarform LSH
Væntanlegar eru breytingar á rekstrarformi Landspítala. Hjúkrunarfræðingar lýsa yfir fullum vilja til þátttöku og samráðs í því breytingaferli en vara jafnframt við því að of hratt sé farið í breytingar á rekstrarformi LSH eða einstakra sviða þess
Lesa meira...
Ályktun aðalfundar Fíh um stjórnun LSH
Starfsemi Landspítala, eins og annarrar heilbrigðisþjónustu, hvílir á tveimur megin stoðum, þ.e. lækningum og hjúkrun. Í lögum um heilbrigðisþjónustu síðustu 30 árin hefur skýrt verið kveðið á um faglega yfirstjórn hjúkrunarfræðinga yfir hjúkrunarþjónustu heilbrigðisstofnana. Það skipulag hefur leitt til mikilla framfara í heilbrigðisþjónustu hér á landi.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um samstarf LSH og kragasjúkrahúsa
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) fagnar samkomulagi Landspítalans við nágrannasjúkrahúsin fjögur um aukið samstarf og tilflutning verkefna.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um skort á hjúkrunarfræðingum á LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) tekur undir ályktun og áskorun almenns fundar hjúkrunarfræðinga á Landspítala-háskólasjúkrahúsi sem haldinn var þann 5. apríl sl. þar sem lýst var yfir miklum áhyggjum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum á LSH
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um boðaðar sparnaðaraðgerðir
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir miklum vonbrigðum með að enn skuli stefnt að frekari niðurskurði á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Samkvæmt upplýsingum frá formanni stjórnarnefndar LSH, sem fram komu í fréttum nú um helgina, hefur stjórnarnefnd verið gert að leggja fram tillögur um verulegan sparnað í rekstri spítalans árið 2005.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um samdrátt í þjónustu LSH
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir þungum áhyggjum af samdrætti í þjónustu og fyrirhuguðum uppsögnum starfsfólks á Landspítala háskólasjúkrahúsi.
Lesa meira...
Ályktun stjórnar Fíh um boðaðar uppsagnir á LSH
tjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) lýsir þungum áhyggjum af samdrætti í þjónustu og fyrirhuguðum uppsögnum starfsfólks á Landspítala háskólasjúkrahúsi. Nú þegar Alþingi hefur gert hlé á störfum er ljóst að um frekari fjárveitingar til rekstrar LSH verður ekki að ræða. Uppsagnir allt að 200 starfsmanna blasa því við með þeirri skerðingu á þjónustu sem óhjákvæmilega mun fylgja í kjölfarið.
Lesa meira...
