10.04.2006

Ályktun stjórnar Fíh um þjónustusamninga og öldrunarstofnanir

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hvetur stjórnvöld og stjórnendur öldrunarstofnana til að gera nú þegar sérstaka þjónustusamninga um rekstur stofnananna þar sem skýrt verði kveðið á um gæði og magn þjónustunnar, og þann mannafla sem krafist er til að tryggja viðeigandi þjónustu hverju sinni.
Lesa meira...

25.02.2005

Ályktun Félagsráðs um öldrunarmál

Félagsráðsfundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldinn 25. febrúar 2005 telur óásættanlegt að nær helmingur þeirra einstaklinga sem vistast á hjúkrunarheimilum þurfi að búa við þau skilyrði að deila herbergi með öðrum alls ókunnugum einstaklingi.
Lesa meira...

16.05.2003

Ályktun fulltrúaþings Fíh um heimahjúkrun og hjúkrunarheimili

Fulltrúaþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga haldið 15. og 16. maí 2003 hvetur til þess að hraðað verði uppbyggingu heimahjúkrunar til aldraðra og hjúkrunarrýmum fjölgað
Lesa meira...