Fagdeildir//



Úr lögum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga:

 

16.  gr. Fagdeildir

Félagsmönnum, þó að lágmarki 25 saman, er heimilt að stofna sérstakar fagdeildir á fagsviði sínu og skulu þær starfa á landsvísu.

 

Fagdeildir skulu starfa í samræmi við starfsreglur sem stjórn félagsins setur og aðalfundur hefur samþykkt.

 

Fagdeildir vinna að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sviði í samvinnu við fagsvið félagsins og skulu m.a. vera stjórn félagsins og nefndum til ráðgjafar. Stofnun fagdeildar skal borin upp til samþykktar á aðalfundi félagsins. Fagdeild er skylt að skila skýrslu um starfsemina til stjórnar félagsins fyrir lok marsmánaðar ár hvert. Skili fagdeild ekki slíkri skýrslu tvö ár í röð getur aðalfundur félagsins ákveðið að leggja hana niður.

 

17.  gr. Öldungadeild

Heimilt er að starfrækja deild öldunga innan félagsins.

 

 

 

 

Styrkir til fagdeilda

Skv reglum stjórnar Fíh geta fagdeildir sótt árlega um styrki til annars vegar erlends samstarfs og hins vegar til verkefna innanlands. Umsóknarfrestur er til 15. apríl ár hvert.  Skoða reglur um styrki til fagdeilda