Barnahjúkrun//
Mikið er leitað til hjúkrunarfræðinga meðal almennings vegna þekkingar þeirra á hvernig megi koma til móts við heilbrigðistengdar þarfir fólks í ólíkum aðstæðum og á ólíkum aldurskeiðum, m.a. vegna veikinda barna og unglinga og hvernig megi best hlúa að þeim í ólíkum kringumstæðum, því skiptir máli að hinn almenni hjúkrunarfræðingur hafi nokkra þekkingu á barnahjúkrun og geti veitt grundvallarráð og leiðbeiningar um hvað gera þurfi til að mæta og skilja hjúkrunarlegar þarfir barna og unglinga og þætti tengum þeirra heilsufari.
Flestir skjólstæðingar heilbrigðiskerfisins eru foreldrar barna og veikindi þeirra hefur áhrif á börn jafnt sem fullorðna í þeirra umhverfi meiri að segja skiptir það máli í öldrunarhjúkrun að þekkja eitthvað til á sviði barnahjúkrunar.
Stör við barnahjúkrun eru fjölbreytt. Flestir starfa í heilbrigðiskerfinu og aðrir í hinum ýmsum stofnunum í samfélaginu, enn aðrir reka eigin þjónustu við börn og fjölskyldur þeirra með því að bjóða sérhæfða hjúkrun.
Eftirfarandi eru dæmi um starfsvettvang hjúkrunarfræðinga sem starfa við barnahjúkrun.
- á barnadeildum sjúkrahúsanna. Barnadeildir eru á fjórum stöðum á íslandi, við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, við Landspítala-Háskólasjúkrahús við Hringbraut og í Fossvogi og Barna- og unglingageðdeildin við Dalbraut
- á fæðingar- og sængurkvennadeildum
- á göngudeildum heilbrigðisstofnana
- á meðferðarstofnunum og sambýlum fyrir börn s.s. greiningarstöð ríkisins, endurhæfingarstöðum, dagvistun fatlaðra barna s.s. Álfalandi
- í heimahjúkrun barna
- á heilsugæslustöðvum
- í skólum á öllum menntastigum bæði við hjúkrun og kennslu, s.s. við skólahjúkrun,
- í stjórnsýslu s.s. í skipulags- og gæðamálum, við stjórnunarstörf,
- í stjórnmálum s.s. alþingismenn, sveitastjórnarfulltrúar, í nefndum,
- í félagsamtökum s.s. Barnaheill, Umhyggju, æskulýðstörf og íþróttamálum á vegum ýmissa aðila,
- í trúarlegu- og kirkjulegu samhengi s.s. djáknastörfum, æskulýðstarfi, fjölskylduráðgjöf
- í hjálpar- og þróunarstarfi s.s. á vegum Rauðakrossins og hjálparstofnunar kirkjunnar,
- í sjálfstæðum rekstri s.s. heimahjúkrun barna
- á rannsóknarstofnunum sem hafa það markmið að auka þekkingu á þroska og heilsu barna bæði á sviði barnahjúkrunar en einnig þverfaglegar rannsóknarstofnair á sviði barnafræða þar sem hjúkrunarfræðingar í samvinnu við aðrar fagstéttir sem hafa sambærileg áhugamál.
- alþjóðlegt samstarf
Barnahjúkrun er fjölbreytt starf og áhugavert og kemur á móts við fjölbreytt áhugamál og hugmyndaflug þeirra sem hana stunda. Miklir möguleikar eru á sérhæfingu og vali á sérfræðilegum sviðum innan barnahjúkrunar og mikil þróun er í gangi á þessu sviði sem gerir hana sérstaklega spennandi kost fyrir hjúkrunarfræðinga.
Stjórn
Vigdís Hrönn ViggósdóttirFormaður
Oddný Kristinsdóttir
Varaformaður
Inger María Ágústsdóttir
Gjaldkeri
Guðlaug Erla Vilhjálmsdóttir
Ritari
Gerða Friðriksdóttir
Meðstjórnandi
Pálína Hugrún Björgvinsdóttir
Meðstjórnandi
Vigdís Friðriksdóttir
Meðstjórnandi

Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar

Smelltu hér til að gerast félagi í fagdeild barnahjúkrunarfræðinga
