Starfsreglur Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga

 

1.gr      Nafn

Nafn fagdeildarinnar er Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru lög fagdeildarinnar.

2.gr.     Markmið Fagdeildar barnahjúkrunarfræðinga

1.     Að vinna að bættri hjúkrun barna og ungmenna í samvinnu við fjölskylduna.

2.     Að stuðla að bættri fræðslu og forvörnum til skjólstæðinga.

3.     Að vinna að aukinni menntun í barnahjúkrun fyrir hjúkrunarfræðinga.

4.     Að hvetja félaga til að viðhalda hæfni sinni og auka þekkingu sína.

5.     Að stuðla að nánara samstarfi fagdeilda við aðra hjúkrunarfræðinga, jafnt innanlands sem utan.

6.     Að kynna málefni barna og ungmanna.

7.     Að stuðla að rannsóknum í barnahjúkrun.

8.     Að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar um faglegt efni er lýtur að barnahjúkrun.

  

3.gr.     Félagar

Allir félagsmenn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa við eða hafa áhuga á barnahjúkrun, geta orðið félagar í Fagdeild barnahjúkrunarfræðinga. Félagsmaður, sem ekki hefur greitt árgjald í tvö ár, er tekinn út af félagaskrá.

4.gr.     Stjórn fagdeildar

Stjórn fagdeildar skal skipuð fimm eða sjö félagsmönnum; formanni, varaformanni, gjaldkera, ritara og meðstjórnendum. Leitast skal við að a.m.k. einn stjórnarmeðlimur hafi lokið viðbótar- eða framhaldsmenntun í barnahjúkrun. Kjörtímabil er tvö ár og er endurkjör heimilt, þó skal enginn stjórnarmaður sitja lengur en fjögur ár í sama embætti. Leitast skal við að ekki sé skipt um nema þrjá stjórnameðlimi í  einu og að a.m.k. tveir aðilar úr fyrri stjórn sitji áfram í nýrri stjórn.

5.gr. Aðalfundur

Aðalfundur skal haldinn í febrúar eða mars, ár hvert. Aðalfund skal boða með skriflegum og/eða rafrænu fundarboði með minnst tveggja vikna fyrir vara. Aðalfundur er lögmætur sé löglega til hans boðað. Hægt er að boða aukaaðalfund óski a.m.k. 25% félagsmanna eftir því.

6.gr. Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi :

1.     Kosning fundarstjóra og fundarritara.

2.     Skýrsla stjórnar.

3.     Endurskoðaðir ársreikningar lagðir fram til samþykktar.

4.     Árgjald ákveðið.

5.     Breytingar á starfsreglum.

6.     Kosning stjórnar skv. 4 gr.

7.     Kosning tveggja endurskoðenda.

8.     Kosið í nefndir.

9.     Önnur mál.

7.gr. Reikningar

Reikningar fagdeildarinnar eru lagðir fram árlega á aðalfundi.

8.gr. Slit fagdeildar

Deildin verður því aðeins lög niður að meirihluti félaga sé því samþykkur.

9.gr. Tilnefna má heiðursfélaga fagdeildarinnar hvern þann sem félagsmenn vilja sýna sérstaka virðingu.

10.gr. Starfsreglum þessum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu skriflegar tillögur um breytingar á reglum berast stjórn þremur vikum fyrir aðalfund. Tillögur um breytingar á starfsreglum skulu fylgja aðalfundarboði.