Gigtarhjúkrun//
Fagdeild gigtarhjúkrunarfæðinga innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var stofnuð árið 2006. Markmið hennar eru:
1. Að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar í öllu sem snýr að hjúkrun sjúklinga með gigtar- og ónæmissjúkdóma.
2. Að stuðla að bættri hjúkrun gigtarsjúklinga meðal annars með því að :
a) Bæta menntun í hjúkrun gigtarsjúklinga, hvetja hjúkrunarfræðinga til að viðhalda og auka hæfni sína og þekkingu.
b) Auka samstarf milli fagfólks sem annast gigtarsjúklinga og stuðla að bættri þjónustu við sjúklinga.
c) Hvetja til rannsókna í hjúkrun sjúklinga með gigtarsjúkdóma. Fylgjast með nýjungum og kynna þær.
d) Efla tengsl við gigtarhjúkrunarfræðinga erlendis.
e) Hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðisþjónustu, einkum sem snýr að þörfum gigtarsjúklinga.
3. Auka skilning og efla þjóðfélagsumræðu um þarfir gigtarsjúklinga og stuðla að aukinna fræðslu og forvörnum til skjólstæðinga.
Fagdeildin er í samvinnu við samskonar fagdeildir á hinum norðurlöndunum.
Stjórn
Kristín Hannesdóttir
Formaður
Elínborg Stefánsdóttir
varaformaður
Ragnheiður Snorradóttir
Gjaldkeri
Aðalbjörg Þorvarðardóttir
Meðstjórnandi
Hafdís Gunnarsdóttir
Meðstjórnandi
Sigríður Lovísa Sigurðardóttir
Varamaður og ritari
Endurskoðendur:
Þóra Bjarnadóttir
Guðný Baldursdóttir

Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar

Smelltu hér til að gerast félagi í fagdeild gigtarhjúkrunarfræðinga
