Starfsvettvangur
Aðalstarfsvettvangur gigtarhjúkrunarfræðinga er á legudeild B-7 LSH Fossvogi, dagdeildum A og B LSH Fossvogi og Gigtardeild á Reykjalundi.
Hjúkrunarfræðingar svara líka í síma hjá gigtarlínu Gigtarfélags Íslands, ásamt öðrum fagstéttum og svara þar fyrirspurnum sem snúa að hinum ýmsu gigtarsjúkdómum.
Deild B-7
B-7 er 12 rúma legudeild sem sérhæfir sig í meðferð gigtarsjúklinga af öllu landinu. Þangað koma sjúklingar til greiningar og meðferðar á gigtarsjúkdómum. Einnig sinnir deildin sjúklingum með ýmsa almenna lyflæknissjúkdóma.
Dagdeild A
Dagdeild A var opnuð á 7. hæð á LSH Fossvogi í byrjun árs 2003. Þar er veitt meðferð við gigtar- og ónæmissjúkdómum sem hefur verið í hraðri þróun og framför síðustu 25 ár.
Hlutverk hjúkrunarfræðinga sem starfa á dagdeildinni er margþætt og má gróflega skipta í eftirfarandi þætti:
· Fræðsla – Upplýsa lyfjaþegana um þá sjúkdóma sem þeir eru að glíma við og hvernig lyfin
koma til með að hjálpa til og hvað beri helst að varast.
· Verkleg kennsla
· Tryggja öryggi lyfjaþeganna/Bregðast við aukaverkunum
· Skipulagning starfseminnar
· Skráning
· Símaþjónusta
Dagdeild B
Deildin tekur við sjúklingum sem þurfa á rannsóknum eða meðferð að halda sem best og hagkvæmast verður sinnt á dagdeild.
Innan deildarinnar er starfrækt göngudeild einu sinni í viku þar sem gigtarsjúklingum er sinnt.
Gigtarsvið Reykjalundar
Á gigtarsviði fer fram endurhæfing sjúklinga með langvinna stoðkerfisverki. Þetta eru sjúklingar með „klassíska gigtarsjúkdóma“ svo sem liðagigt, slitgigt og hryggikt auk vefjagigtar og annarra langvarandi verkjavandamála.
Hjúkrunarfræðingar á gigtarsviði sjá um markvissa meðferð sjúklinga með þyngdarvanda, svefnvanda einnig aðstoða þeir sjúklinga við að finna ýmis úrræði við verkjum. Meðferðin er í formi stuðnings , fræðslu og hugrænnar atferlismeðferðar.
