Stjórnendur//
Fagdeild hjúkrunarstjórnenda
Á auka aðalfundi deildar hjúkrunarstjórnenda sem haldinn var 4. mars 2010 voru gerðar breytingar á starfsreglum deildarinnar. Helsta breytingin var sú að nú gilda nýjar reglur um aðild að deildinni.
Samkvæmt eldri starfsreglum var aðild einskorðuð við ákveðnar stjórnunarstöður en núna er Fagdeild hjúkrunarstjórnenda opin fyrir hjúkrunarfræðinga í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa við faglega og rekstrarlega stjórnun. Sótt er skriflega um inngöngu til stjórnar fagdeildarinnar sem ákveður um félagsaðild.
Fagdeildin er áhugamannafélag hvers markmið eru að vera virkur þáttakandi í stefnumótun, stuðla að aukinni þekkingu í hjúkrunarstjórnun og í stjórnun heilbrigðis- og velferðarþjónustu og efla gæði með ábyrgri, faglegri og rekstrarlegri stjórnun. Fagdeildin er virkur samstarfsaðili heilbrigðisstjórnenda á alþjóðavettvangi og beitir sér fyrir þverfaglegu samstarfi, rannsóknum og framförum í hjúkrunarstjórnun og stjórnun í heilbrigðis – og velferðarþjónustu.
Stefna fagdeildar hjúkrunarstjórnenda er að halda málþing árlega fyrir félagsmenn til að efla tengsl hjúkrunarstjórnenda, miðla þekkingu og stuðla að framförum.
Nýju starfsreglurnar er að finna hér á heimasíðunni og stefnt verður að því að nýta heimasíðu FÍH og undirsíðu fagdeildarinnar til upplýsingar fyrir félagsmenn.


