Innsýn//
Innsýn - fagdeild hjúkrunarfræðinga á speglunardeildum
Í hnotskurn er starf hjúkrunarfræðinga á speglunardeild:Fjölbreytt hjúkrun - ábyrgðarmikið -krefjandi - mikil sérþekking -mikið samstarf við aðrar heilbrigðisstéttir - ráðgjöf - rannsóknir - mikil nánd við sjúklinga - mjög flókin tæknileg vinna - sjúklingar á öllum aldri - mikið veikir/lítið veikir.
Hvert er hlutverk og ábyrgð hjúkrunarfræðinga á Speglanadeildum?
- Hjúkrunarfræðingur fylgir sjúklingnum allt rannsóknarferlið, í því felst m.a.:
- Móttaka og fræðsla til sjúklings og aðstandenda, ráðgjöf fyrir og eftir rannsókn
- Gera hjúkrunarskráningu, safna nauðsynlegum upplýsingum um viðkomandi.
- Undirbúa sjúklinginn fyrir rannsókn, hafa allt sem gæti þurft að nota tilbúið, yfirfara tæki og fylgihluti, svo að allt virki rétt.
- Aðstoða sjúkling og gefa lyf eftir þörfum. Fylgjast með lífsmörkum og skrá.
- Aðstoða við aðgerð, taka sýni o.fl.
- Ganga frá sýnum og skráningu, fyljast með sjúklingi þar til hann úrskrifast.
Góð þekking á smitgát og meðferð flókinna og viðkvæmra tækja er nauðsynleg.
Hjúkrunarfræðingur þarf að hafa breiða þekkingu þar sem unnið er með mikið veika sjúklinga í óstöðugu ástandi og einstaklinga utan úr bæ, sem við vitum lítið um. Hjúkrunarfræðingurinn þarf að hafa mjög góða yfirsýn og vera fljótur að átta sig á öllum breytingum og hafa hæfni til að bregðast rétt við óvæntum aðstæðum. Þekkingu á deyfilyfjum, milliverkun, mótefnum o.fl.
Hvaða starfssemi fer fram á Speglanadeildum ?
Eftirfarandi rannsóknir eru framkvæmdar:
- Magaspeglanir
- Langar ristilspeglanir (colonosc.)
- Stuttar ristilspeglanir (sigmoidsc.)
- Endaþarmsspeglanir (procto)
- Lungnaspeglanir
- Gall- og brisspeglanir (ERCP)
- Holsjárómun - endoscopic ultrasound
- Holsjársaumun v/ þindarslits - endoscopic cardioplasty
- PEG - innsetning á magaleggjum - fæðulegg
- Útöndunarloftsrannsóknir - UBT
Í speglunum er hægt að gera ýmislegt:
- Stöðva blæðingar
- Fjarlægja sepa, æxli og aðskotahluti.
- Fjarlægja gallsteina.
- Víkka þrengingar í vélinda og víðar.
- Setja stoðrör.
Símenntun er nauðsynleg öllum hjúkrunarfræðingum, sem vinna við Speglanir, þar sem þróun innan fagsins er mjög ör. Nú fer þjálfun fram á deildunum og tekur 6-12mán.
Unnið er að menntunarmálum og vonandi styttist í skipulagt sérnám.

