Starfsreglur Styrktarsjóðs Fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga

  1. Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður Fagdeildar krabbameinshjúkrunarfræðinga.

  2. Stjórn sjóðsins er skipuð þremur félögum í deildinni, og þar af minnst einum stjórnarmanni.  Stjórn sjóðsins er kosin til tveggja ára í senn, en þó skulu ekki allir stjórnarmenn ganga úr stjórn á sama tíma.

  3. Umsóknarfrestur um styrki úr sjóðnum er til 1. apríl ár hvert og verður umsóknum svarað fyrir 1. maí.  Umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu fagdeildarinnar, undir Styrktarsjóður fagdeildar.

  4. Umsækjendur skulu vera skuldlausir við fagdeildina og hafa verið félagar í deildinni í að minnsta kosti eitt ár.

  5. Styrkveitingar úr sjóðnum skulu miðast við að höfuðstóll hans haldi verðgildi sínu að upphæð 1.000.000,- kr. Hver styrkur skal ekki vera hærri en 100.000,- kr.

  6. Styrkir verða eingöngu veittir í verkefni og til símenntunar á sviði krabbameinshjúkrunar.

  7. Styrkþegar skulu kynna verkefni sín fyrir fagdeildinni innan 6 mánaða frá veitingu.  Kynningin getur verið í formi greinar í fréttabréfinu eða með því að kynna verkefnið á fundum deildarinnar.

  8. Umsóknum verður raðað í forgangsröð.  Umsóknir til að sækja vísindaþing, einkum þar sem styrkþegi kynnir rannsóknarniðurstöður ganga fyrir.  Þeir sem hlotið hafa styrk áður lenda aftar í röðinni.

  9. Eldri verkefni en ársgömul eru ekki styrkhæf.

  10. Styrkjum verður úthlutað samkvæmt fjárhagsáætlun eða framlögðum reikningi í frumriti.  Sé styrks ekki vitjað fyrir 1. apríl ári eftir að hann var veittur, fellur hann niður.

  11. Sjóðurinn er í vörslu gjaldkera fagdeildarinnar. Reikningsár sjóðsins er 1. janúar til 31. desember ár hvert. Reikningar sjóðsins verða yfirfarnir af skipuðum endurskoðendum fagdeildarinnar

  12. Reglur sjóðsins skal endurskoða árlega, fyrir aðalfund fagdeildarinnar.
     

Endurskoðað af stjórn fagdeildar og samþykkt í mars 2012

 

Tillaga að breytingu sem samþykkt var á aðalfundi fagdeildar 03.03.2010:

Liður 8: Umsóknum verður raðað í forgangsröð. Umsóknir til að sækja vísindaþing, einkum þar sem styrkþegi kynnir rannsóknarniðurstöður ganga fyrir. Þeir sem hlotið hafa styrk áður lenda aftar í röðinni.

Umboð frá aðalfundi til stjórnar fagdeildarinnar:

 

Sé rekstrarstaða fagdeildar með þeim hætti að afgangur er af rekstrarfé er stjórn fagdeildar heimilt að ráðstafa hluta af þeim fjármunum til styrktarsjóðsins. Þeir fjármunir verða ekki lagðir inn á höfuðstól sjóðsins heldur verða notaðir til að veita styrki til félagsmanna.  Umboð þetta verði endurskoðað á næsta aðalfundi árið 2011.

 

Rökstuðningur:  Við núverandi aðstæður í íslensku samfélagi reynist erfitt fyrir hjúkrunarfræðinga að fá styrki til að sækja vísindaþing til að kynna niðurstöður rannsókna og til annarrar sí- og endurmenntunar.  Í ljósi þess er lagt til að afgangur af rekstrarfé fagdeildar sé notaður tímabundið til að fjölga styrkjum til félagsmanna.

Þegar umsóknareyðublað er sótt þarf að vista eyðublaðið , fylla það út og setja síðan á póstviðhengi og senda á krabb@hjukrun.is  

Sækja umsóknareyðublað