Lungnahjúkrun//
Hugmyndafræði lungnahjúkrunar er að veita örugga, árangursríka og einstaklingshæfða, fjöskyldumiðaða hjúkrun, sem byggð er á þekkingu, umhyggju, kærleika og virðingu. Hjúkrunarmeðferðin tekur mið af líkamlegum, andlegum, trúarlegum, menningarbundnum og félagslegum þörfum sjúklinga. Markmið fagdeildar lungnahjúkrunarfræðinga er að vinna samkvæmt ofangreindri hugmyndafræði. Fagdeildin vill stuðla að eflingu forvarna og mæta þörfum fólks með lungnasjúkdóma og fjölskyldna þeirra fyrir sérhæfða, heildræna og samfellda hjúkrun með því að tryggja greiðan aðgang að hjúkrunarmeðferð á öllum þjónustustigum.
Fjöldi lungnasjúklinga fer vaxandi bæði hér á landi og um allan heim. Því er mikilvægt að efla þekkingu á hjúkrun lungnasjúklinga og hlutverki hjúkrunarfræðinga.
Fagdeildin leggur áherslu á gott samstarf við hagsmunasamtök sjúklinga og aðrar fagstéttir um meðferð lungnasjúklinga.
Fréttir og tilkynningar
06.03.2012
NLC 2013 verður haldið á Íslandi dagana 13-15. Júní.
Fagdeild lungnahjúkrunarfæðinga ásamt félagi lungnalækna er í forsvari fyrir undirbúningi ráðstefnunnar.
Lesa meira...
Stjórn
Stella HrafnkelsdóttirFormaður
Björg Jónsdóttir
Ritari
Jónína Sigurgeirsdóttir
Gjaldkeri
Gunnhildur Kristinsdóttir
Meðstjórnandi
Ásta Karlsdóttir
Meðstjórnandi
Sigríður Heimisdóttir
Meðstjórnandi

Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar

Smelltu hér til að gerast félagi í fagdeild lungnahjúkrunarfræðinga
