Nýrnahjúkrun//

Fagdeild nýrnahjúkrunarfræðinga var stofnuð 5 april 2011. Hlutverk Fagdeildar nýrnahjúkrunarfræðinga er m.a. að vinna að framgangi hjúkrunar nýrnasjúklinga í samvinnu við fagsvið Fíh og vera stjórn Fíh og nefndum til ráðgjafar í öllu sem snýr að hjúkrun einstaklinga með sjúkdóma í nýrum og aðstandendum þeirra.

Markmið Fagdeildar nýrnahjúkrunarfræðinga eru að:

• hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum einkum er lýtur að þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma í nýrum

• bæta menntun hjúkrunarfræðinga í hjúkrun einstaklinga með sjúkdóma í nýrum og hvetja hjúkrunarfæðinga til að viðhalda og auka þekkingu sína á því sviði

• hvetja til rannsókna í hjúkrun einstaklinga með sjúkdóma í nýrum og fylgjast með nýjungum

• stuðla að aukinni fræðslu til almennings um sjúkdóma í nýrum og efla forvarnir

• stuðla að góðu samstarfi við hjúkrunarfræðinga á Íslandi og efla tengsl við erlend samtök nýrnahjúkrunarfræðinga

• stuðla að bættri þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma í nýrum og aðstandendur þeirra í samstarfi við aðrar fagstéttir

• kynna og koma á framfæri málefnum einstaklinga með sjúkdóma í nýrum

• stuðla að góðu samstarfi við Félag nýrnasjúkra og önnur hagsmunasamtök 

Hjúkrun sjúklinga með nýrnasjúkdóma er þverfaglegt starf sem margir aðilar koma að. Aðrir en hjúkrunarfræðingar sem koma að meðferðinni eru s.s. næringarráðgjafar, félagsráðgjafar, sjúkraþjálfarar og heimahjúkrun. Sjúklingahópurinn hefur oft önnur fjölþætt heilbrigðis vandamál eins og hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki, sjálfsofnæmissjúkdóma og geðsjúkdóma. Hjúkrunarvandamál þeirra eru þannig margvísleg og krefjast mikillar kunnáttu og færni af þeim sem sinna þessum hóp. Mikilvægt er því að heildræn nálgun sé í hjúkrunarmeðferðinni og tekið tillit til óska og þarfa sjúklingsins og aðstandenda hans. 

 
Hjúkrun sjúklinga með nýrnasjúkdóma fer fram á öllum þjónustustigum heilbrigðiskerfinsins en megin þungi þjónustunnar er á Landspítala (LSH). Þegar nýrnasjúkdómur er kominn á lokastig er eftirlit á göngudeild LSH. Um tvenns konar meðferð er að ræða, skilunarmeðferð og ígræðslu. Skilunarmeðferð fer fram á skilunardeild LSH sem er eina deildin sinnar tegundar á landinu. Skjólstæðingar þar eru á öllum aldri, frá fæðingu og upp úr. Á skilunardeildinni er gerð blóðskilun og blóðvatnsskipti og sjúklingum kennd kviðskilun. Sjúklingar í kviðskilun eru í eftirliti hjá hjúkrunarfræðingum deildarinnar eftir að þjálfun líkur og þeir komnir heim. Hjúkrunarfræðingar skilunardeildar sjá um blóðskilun og blóðvatnsskipti á gjörgæsludeildum LSH. Ef sjúklingi er ekki treyst til flutnings milli deilda fara hjúkrunarfræðingar á legudeildir LSH með blóðskilunarvél. Alltaf er einn hjúkrunarfræðingur á bakvakt frá lokun deildarinnar til næstu opnunar til að bregðast við bráða tilfellum. Ígræðlur á nýra fara bæði fram á LSH og erlendis. Ígræðslur á nýra úr lifandi gjafa eru gerða nokkrum sinnum á ári á LSH. Fái eintaklingurinn nýra úr látnum gjafa fer hún fram á því sjúkrahúsi erlendis sem TR er með samning við. Ævilöng eftirfylgd er eftir ígræðsluna og er hún á göngudeild LSH. Legudeild fyrir einstaklinga með nýrnasjúkdóma á hvaða stigi sem er á LSH. 

Lítið hefur verið um beint framhaldsnám í hjúkrun nýrnasjúklinga hér á landi en erlendis er hægt að fara í séhæf nám í skilunarhjúkrun. Mikilvægt er að styðja hjúkrunarfræðinga í sí- og endurmenntun og nýta þá reynsluþekkingu sem til staðar er í faginu og er ekki síður mikilvæg en fræðileg þekking.

Stjórn

Hildur Einarsdóttir 
formaður

Olena Guðmundsson
gjaldkeri

Guðrún Ingadóttir
ritari






Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar


Smelltu hér til að gerast félagi í fagdeild nýrnahjúkrunarfræðinga