Öldungadeild//

Öldungadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

 

Um 280 félagar í lifandi og virkri deild

Við erum u.þ.b. 280 félagar í  Öldungadeildinni sem  er lifandi og virk, fundir og ferðalög afar vel sótt.  Deildin lætur sig varða allt milli himins og jarðar og er sú fjölmennasta innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Árið 1980 var stofnuð deild ellilífeyrisþega innan Hjúkrunarfélags Íslands, hlaut hún nafnið Hlíf.  Nafninu var síðar breytt í  Öldungadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Deildin er opin öllum hjúkrunarfræðingum 60 ára og eldri. Markmiðið er að sameina þá og vera tengiliður við  Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga sem gætir hagsmuna þeirra..

Fundir og góðar stundir Það eru haldnir fundir og farið í ferðalög.  Þar hittast gamlir vinir, skólafélagar og starfsfélagar og eiga góða stund saman.

Fundir eru þrír  á ári: Haustfundur, þá fáum við gjarnan góðan  gest, til að skemmta og fræða. Jólafundur, þá er dagskráin með aðventu- og jólabrag.  Aðalfundur með öllu,  sem slíkum fundum tilheyrir og fastur liður er að fá formann Fíh í heimsókn.

Skemmtiferð og erlend tengsl. 

Ein skemmtiferð er farin á ári, að jafnaði í júní. Um er að ræða dagsferð en mjög eru þær mislangar.  Deildin hefur stofnað til tengsla við öldungadeild danska hjúkrunarfélagsins Senior- sammenslutningen , og hafa þær skipst á heimsóknum.   
Félagsgjöld eru engin,  aðeins þarf að hafa samband við skrifstofu Fíh og skrá sig.

Hjúkrunarfræðingar 60 ára og eldri verið hjartanlega velkomin í Öldungadeild Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga

 

 

Stjórn

Bergljót Líndal
Formaður

María Guðmundsdóttir
Varaformaður

Guðrún Guðnadóttir
Gjaldkeri

Oddný Ragnarsdóttir

Nanna Jónasdóttir

Varamenn:
Emilía Guðjónsdóttir
Erna Aradóttir
Ingileif Ólafsdóttir







Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar