Reglur um notkun merkis Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og merkja fagdeilda
Merki Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga er einkennismerki félagsins. Félagsmerkið skal nota sem einkennismerki í allri starfsemi félagsins þar með talið fagdeildum þess.
Merki fagdeildar
1. Heimilt er að útbúa sérstakt merki fyrir fagdeild.
2. Stjórn Fíh skal samþykkja merki fagdeildar áður en það er tekið í notkun.
Um notkun merkis fagdeildar
1. Merki fagdeildar má ekki nota eitt og sér.
2. Þess skal gætt að merki Fíh sé notað jafnhliða merki fagdeildar t.d. á bréfsefni eða öðru efni sem fagdeildin sendir frá sér.
Samþykkt af framkvæmdaráði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 8. júlí 2009
