Skurðhjúkrun//

Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga


Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga var formlega stofnuð 25. apríl 1994, á grunni Félags skurðstofuhjúkrunarkvenna, sem var stofnað 7. desember 1972. Í dag eru um 130 hjúkrunarfræðingar skráðir í fagdeildina. Fagdeildin starfar skv. reglum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um fagdeildir innan þess. Markmið Fagdeildar skurðhjúkrunar er að vinna að framgangi skurðhjúkrunar, stuðla að fræðslu innan fagsins, vinna að faglegum málefnum og taka þátt í erlendu samstarfi.

Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga stuðlar að símenntun skurðhjúkrunarfræðinga með ráðstefnuhaldi og veitingu styrkja úr Ráðstefnu- og námsjóði Fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga.

Stjórn fagdeildar:
Stjórnina skipa 5 fulltrúar; formaður, gjaldkeri, ritari og 2 meðstjórnendur. Stjórnarmenn eru kjörnir til 3ja ára í senn á aðalfundi. Í stjórn eru 1-2 NORNA fulltrúar og 1- 2 EORNA fulltrúar.Starfsemi fagdeildarinnar.
Stjórn fagdeildarinnar heldur fundi mánaðarlega. Aðalfundur er haldinn í febrúar/ mars á hverju ári og ráðstefna að hausti. Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga, ISORNA, er aðili að og á fulltrúa í samtökum norrænna skurðhjúkrunarfræðinga NORNA og Evrópusamtökum skurðhjúkrunarfræðinga EORNA. Þessi samtök vinna að þróun fagsins, svo sem gæðamálum, vinnuumhverfi, menntun, skipulagningu ráðstefna og stuðla að rannsóknum á sviði skurðhjúkrunar. Í EORNA er m.a. verið að vinna staðla í skurðhjúkrun og eru íslensku fulltrúarnir virkir þátttakendur í þeirri vinnu. Stærsta verkefni fagdeildarinnar undanfarið er NORNA ráðstefnan sem haldin var í Reykjavík í maí 2011.

Fagdeildin hefur átt fulltrúa í vinnuhóp Landlæknisembættis um gerð gæðakrafa fyrir skurðstofur.
 
Merki fagdeildar.
Merki fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga er nálahaldari á grænum grunni, tengdur órofinni línu sem á að tákna hringferli skurðhjúkrunar. Skal það notað samhliða merki FÍH. Einungis meðlimir fagdeildar skurðhjúkrunarfræðinga mega bera merkið.

Að gerast félagi í Fagdeild skurðhjúkrunarfræðinga.
Ef þú óskar eftir að ganga í fagdeildina vinsamlegast sendu umsókn til stjórnar fagdeildarinnar með upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang, menntun og vinnustað. Meðlimir greiða árgjald sem er ákveðið á aðalfundi ár hvert.
 
28. feb. 2012 


Fréttir og tilkynningar

Stjórn

Bryndís Ólafsdóttir 
Formaður, NORNA fulltrúi  

Ragnheiður Jónsdóttir
Gjaldkeri,  EORNA fulltrúi

Erla Björk Birgisdóttir 
Meðstjórnandi 

Hildur Guðmundsdóttir 
Meðstjórnandi 

Kristín Þórarinsdóttir 
EORNA fulltrúi







Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar