Starfsreglur fagdeilda//

Hlutverk og starfsreglur fagdeilda Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh)

Nafn fagdeildar
Fagdeild ... innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

Hlutverk fagdeildar
Fagdeild..... vinnur að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sérsviði í samvinnu við fagsvið Fíh og er stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar um málefni á sérsviði fagdeildar (sbr. lög Fíh, 16.gr. Fagdeildir).

Starfsreglur fagdeilda
Aðild
Hjúkrunarfræðingar í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem starfa eða hafa starfað á viðkomandi sérsviði og/eða hafa sérfræðingsleyfi eða viðbótarmenntun á viðkomandi sérsviði geta orðið aðilar að fagdeild. Óskað er aðildar til stjórnar fagdeildar.

Stjórn
Í stjórn fagdeildar er a.m.k. einn stjórnarmaður með viðbótar- eða framhaldsnám á sérsviði fagdeildar.
Stjórn fagdeildar skal stofna kennitölu fagdeildar og hafa alla bankareikninga á þeirri kennitölu. Árgjald og innheimta er háð samþykki fagdeildar.

Stefnumótun
Fagdeild skal setja sér stefnu í hjúkrunar- og heilbrigðismálum á sérsviði fagdeildar. Sviðstjóra fagsviðs Fíh skal kynnt stefnan. Endurskoða skal stefnuna reglulega.

Dæmi um stefnu fagdeilda
• að fagdeild bjóði fram fulltrúa sem kosinn er til setu í félagsstjórn Fíh
• að vinna að framgangi hjúkrunar á sérsviði fagdeildar
• að standa vörð um fagmennsku í hjúkrun sérsviðs fagdeildar
• að stuðla að þróun hjúkrunarþekkingar á sérsviði fagdeildar
• að efla rannsóknir á sérsviði fagdeildar
• að vera í virkum tengslum við fagfélög erlendis
• að vera virkir þátttakendur í þverfaglegu samstarfi á viðkomandi sérsviði
• að stuðla að fræðslu
• að vera málsvari hjúkrunar á vettvangi viðkomandi sérsviðs fagdeildar

Ársskýrsla
Fagdeild skal skila skýrslu um starfsemi sína til sviðstjóra fagsviðs Fíh fyrir lok marsmánaðar ár hvert.
(Sjá Gæðaskjal um stofnun, hlutverk, slit fagdeildar)

Merki fagdeildar
Heimilt er að útbúa sérstakt merki fyrir fagdeild.
(Sjá Gæðaskjal um merki fagdeildar)

Slit fagdeildar
Fagdeild er hægt að leggja niður á aðalfundi fagdeildar. Einnig getur aðalfundur Fíh ákveðið að leggja niður fagdeild hafi hún ekki skilað ársskýrslu til stjórnar Fíh tvö ár í röð.
(Sjá Gæðaskjal um stofnun, hlutverk, slit fagdeildar)

Nánari útfærsla á starfsreglum er í höndum fagdeildar
Dæmi um nánari útfærslu
• stjórn fagdeildar og kosning
• dagskrá aðalfundar
• endurskoðun reikninga
• starfsnefndir fagdeildar



Samþykkt á aðalfundi Fíh þann 12. maí 2009

.