Taugahjúkrun//
Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga
Inngangur
Fagdeild taugahjúkrunarfræðinga var stofnuð 18 nóvember 2004. Eitt aðal hlutverk fagdeildarinnar er að efla tengsl hjúkrunarfræðinga sem sinna sjúklingum með sjúkdóma eða áverka í mið eða úttaugakerfi og auka þekkingu innan þessa sviðs.
Fagdeildin tekur undir með Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga (FIH) í hjúkrunar og heilbrigðismálum og hefur meðal markmiða að fylgjast með breytingum á þörfum í þessum stækkandi sjúklingahóp og þörfum hjúkrunarfræðinga sem vinna innan þessa sviðs. Auknar kröfur samfélagsins og sístækkandi hópur taugasjúklinga gerir það að verkum að við þurfum fleiri og betri úrræði til handa þessum hópi ásamt því að styrkja þau úrræði sem við þegar höfum. Sjúklingar með sjúkdóma í mið-eða úttaugakerfi eru margbreytilegur hópur með mismunandi þarfir og verður þjónustan að taka mið af einstaklingunum hverju sinni.
Markmið fagdeildar Taugahjúkrunarfræðinga
• Að vera stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og nefndum til ráðgjafar í öllu því er snýr að hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma eða áverka í mið-og úttaugakerfi.
• Að hafa áhrif á stefnumótun í heilbrigðismálum, einkum því er lýtur að þjónustu við einstaklinga með sjúkdóma eða áverka í mið-og úttaugakerfi.
• Að bæta menntun í hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í mið-og úttaugakerfi og hvetja hjúkrunarfræðinga til að viðhalda og auk þekkingu sína á því sviði.
• Að hvetja til rannsókna í hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í mið-og úttaugakerfi, fylgjast með nýjungum og tileinka sér þær.
• Að stuðla að aukinni fræðslu og forvörnum til skjólstæðinga.
• Að stuðla að aukinni fræðslu til almennings um sjúkdóma í mið-og úttaugakerfi og efla forvarnir.
• Að stuðla að góðu samstarfi við aðra íslenska hjúkrunarfræðinga og efla tengsl við erlend samtök taugahjúkrunarfræðinga.
• Að stuðla að bættri þjónustu við sjúklinga með sjúkdóm í mið-og úttaugakerfi í samstarfi við aðrar fagstéttir.
• Að kynna og koma á framfæri málefnum skjólstæðingana.
Hugmyndafræði
Byggist á heildrænni sýn á heilbrigði sem endurspeglast í aðlögun einstaklingsins að umhverfi sínu og miðar að bættum lífsgæðum.
Hugmyndafræði taugahjúkrunar:
• Að hvetja til sjálfshjálpar og gera sjúklingnum kleift að lifa því lífi sem honum er eiginlegt og öðlast lífsfyllingu þrátt fyrir fötlun eða sjúkdóm.
• Að efla heilbrigðisvitund og ábyrgð á eigin meðferð með markvissri fræðslu fyrir sjúklinga og aðstandendur.
• Að veita heildræna hjúkrun sem byggir á grunnhugmyndafræði hjúkrunar, faglegri sérþekkingu og færni.
• Að vernda hagsmuni og rétt hvers einstaklings og vera málsvarar hans.
• Að styðja aðstandendur í hlutverki sem stuðnings- og/eða umönnunaraðilar.
Starfsvettvangur taugahjúkrunarfræðinga.
Taugahjúkrunarfræðingar starfa við hjúkrun einstaklinga með sjúkdóma eða áverka í taugakerfi s.s. heila og mænu. Þeir starfa m.a;
• á taugalækningadeildum
• á heila-og taugaskurðdeildum
• við endurhæfingu einstaklinga með sjúkdóma eða áverka í mið-og úttaugakerfi.
• við fræðslu, kennslu og rannsóknir á sviði taugasjúkdóma.
• við hjúkrun einstaklinga með krabbamein í mið-eða úttaugakerfi
• við hjúkrun barna með sjúkdóma eða áverka í mið-og úttaugakerfi
• við heimahjúkrun.
Hjúkrunarfræðingar eru þátttakendur í þverfaglegum teymum, sem annast sjúklinga með sjúkdóma eða áverka í mið-eða úttaugakerfi. Markmið er að gefa bestu þverfaglegu þjónustu sem völ er á. Í teymunum eru auk þeirra m.a.; félagsráðgjafar, iðjuþjálfar, næringarráðgjafar, sálfræðingar, sjúkraliðar, sjúkraþjálfar, talmeinafræðingar, taugalæknar og taugasálfræðingar.
Hjúkrun
Hjúkrun taugasjúklinga er mjög fjölbreytt og spennandi hjúkrun. Sjúklingahópurinn er mjög breiður og viðfangsefnin margvísleg.
Í bráðafasanum glíma sjúklingar með sjúkdóma í taugakerfi við tap eða skerðingu á einni eða fleiri lífsnauðsynlegri líkamsstarfsemi og krefst hjúkrun þessara sjúklinga mikillar sérhæfingar. Markmið endurhæfingarhjúkrunar er að fræða, styðja og hvetja skjólstæðinginn til sjálfsbjargar, efla heilbrigðisvitund hans og auka færni til að takast á við breyttar eða nýjar aðstæður.
Líknandi hjúkrun er stöðug, markviss meðferð sjúklingsins og aðstandenda hans frá þeirri stund sem útséð er að sjúklingurinn mun ekki ná bata. Reynt er að uppfylla andlegar, líkamlegar, félagslegar og trúarlegar þarfir og veita stuðning í sorgarferlinu.
Á öllum stigum taugahjúkrunar fer fram fræðsla og stuðningur, bæði til sjúklings og aðstandenda hans.
Forvarnir
Forvarnir eru mikilvægur þáttur í starfi taugahjúkrunarfræðinga og eitt af markmiðum fagdeildarinnar er að hvetja hjúkrunarfræðinga til þátttöku í opinberri umræðu í þjóðfélaginu um heilbrigðan lífsstíl.
Hjúkrunarfræðingar vilja efla rannsóknir í taugahjúkrun og leitast við að nýta niðurstöður þeirra jafnt í daglegum störfum sem og til forvarna (evidence based nursing/gagnrýnd hjúkrun).
Alþjóðasamtökin
WFNN /World Fedaration of neuroscience Nurces.
EANN /European Association of Neurosceince Nurses
Stjórn
Marianne E. KlinkeFormaður
Hafdís Gunnbjörnsdóttir
Varaformaður
Sigurlaug Arngrímsdóttir
Ritari
Dröfn Ágústsdóttir
Gjaldkeri
Sunna Ibsen
Meðstjórnandi
Dóróthea Bergs
Varamaður
Judith Penrod
Varamaður

Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar

Smelltu hér til að gerast félagi í fagdeild taugahjúkrunarfræðinga
