Þvagfærahjúkrun//

Fagdeild hjúkrunarfræðinga tengdum þvagfærahjúkrun

Bakgrunnur/ hugmyndarfræðin
Fagdeild hjúkrunarfræðinga tengd þvagfærahjúkrun var stofnuð haustið 1998. Fagdeildin hafði verið nokkur ár í fæðingu en hópur hjúkrunarfræðinga af LSH tók sig til og lét drauminn rætast. Á þessum deildum var kominn kjarni hjúkrunarfræðinga sem höfðu mikla reynsluþekkingu og metnað fyrir greinina.

Fyrsta verkefni fagdeildarinnar var norræn hjúkrunarráðstefna sem haldin var í Reykjavík í júní 1999. Í kjölfar ráðstefnunnar var stofnaður fagsjóður sem styrkir árlega meðlimi fagdeildarinnar til að sækja námskeið, ráðstefnur eða stunda rannsóknir.

Fagdeildin eru í tengslum við fagdeildir þvagfærahjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum og er í samstarfi við EAUN (Europian Associasion of Urological Nurses), þar er nú verið að vinna öflugt starf um samhæfingu verklags og skilgreiningar menntunar þvagfærahjúkrunarfræðinga í Evrópu.

Að veita einstaklingshæfða og heildræna hjúkrun sem byggir á grunnhugmyndarfræði hjúkrunar, nýjustu faglegri þekkingu og færni.

Að hjúkrunarþjónustan stefni að bættum lífsgæðum einstaklingsins og stuðli að forvörnum.

Að stuðla að velferð, vernda hagsmuni og rétt hvers einstaklings og vera málsvarar hans.

Að virða siðferðilega og lagalega skyldu okkar.

Starfið sjálft
Hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum er á flestum þjónustustigum innan heilbrigðiskerfisins. Hún er fjölbreytt og gefandi og skjólstæðingarnir eru á öllum aldri. Eftirspurn eftir þessari þjónustu fer vaxandi eftir því sem lífaldur hækkar og kröfur um lífsgæði aukast.

Algengasta krabbamein í körlum á Íslandi er krabbamein í blöðruhálskirtli og einnig er stór hluti sjúklinganna með önnur krabbamein í þvagfærum. Framfarir og tækni í meðferð þessara einstaklinga kemur til með að hafa mikil áhrif á hjúkrun þeirra í framtíðinni.

Menntun
Lítið hefur verið um framhaldsnám fyrir hjúkrunarfræðinga hér á landi en íslenskir hjúkrunarfræðingar hafa farið í nám erlendis til að auka þekkingu sína í hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum.

Rannsóknir sem hafa verið unnar í hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma eða einkenni frá þvagfærakerfi:

Notkun NIC hjúkrunarmeðferða meðal hjúkrunarfræðinga á þvagfæradeildum Landspítala.
Umsjón Ásta Thoroddsen

Reynsla karla af brottnámi blöðruhálskirtils
Umsjón Kristín Björnsdóttir

Þvagincontinence
Umsjón Marga Thome

Þvagleki kvenna hjúkrunarmeðferð
Umsjón Margrét Gústafsdóttir

Þvagleki ungra kvenna
Umsjón Herdís Sveinsdóttir.


 

Stjórn

Hólmfríður Traustadóttir
Formaður 

Guðrún Svava Guðjónsdóttir
Gjaldkeri 

Jórunn Edda Hafsteinsdóttir
Ritari 

Kristbjörg Jóhannsdóttir
Meðstjórnandi

Arnfríður Gísladóttir
Meðstjórnandi 

Kolbrún Eva Sigurðardóttir
Meðstjórnandi






Smelltu á umslagið til að senda tölvupóst til deildarinnar




Smelltu hér til að gerast félagi í fagdeild Þvagfæra- hjúkrunarfræðinga