Fagsjóður//

Starfsreglur Fagsjóðs þvagfærahjúkrunarfræðinga


1. Sjóðurinn heitir Fagsjóður þvagfærahjúkrunarfræðinga.


2. Stjórn sjóðsins skulu skipa 3 félagar. Einn í stjórn fagsjóðs skal vera í stjórn fagdeildarinnar. Stjórnin skal kosin til tveggja ára í senn, en þó skulu aldrei allir stjórnarmeðlimir ganga úr stjórn í einu.

3. Úthlutað er úr sjóðnum tvisvar á ári í maí og nóvember. Síðasti skiladagur umsókna er 1.mars og 1.september. Umsóknareyðublað. Umsóknum skal skila á skrifstofu Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga merkta fagsjóði fagdeildarinnar.


4. Umsækjendur skulu vera skuldlausir við fagdeildina og hafa verið meðlimir hennar í að minnsta kosti eitt ár.

5. Styrkur skal vera að hámarki 200.000.00 þúsund krónur til rannsókna og kannanna og 350.000.00 þúsund krónur til að fara í framhaldsnám sem nýtist við hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í þvagfærum.

6. Ráðstefnustyrkir :
A. Hver sjóðfélagi getur sótt um að hámarki 100.000 kr á 3 ára fresti til ráðstefnuferða.

B. Heildarstyrkur til ráðstefnuferða er 300.000 á ári.


7. Þeir sem hljóta styrk úr sjóðnum skulu kynna viðfangsefni/verkefni sín fyrir fagdeildinni innan 6 mánaða frá styrkveitingu. Kynningin getur verið í formi greinar í fréttabréfinu eða með því að segja frá verkefninu á fundum deildarinnar.

8. Umsóknum verður raðað í forgangsröð og þeir sem áður hafa fengið styrk úr sjóðnum lenda þá aftar í röðinni.


9. Styrkjum verður úthlutað samkvæmt framvísun reikninga í frumriti eða rannsóknaráætlun.

10. Sjóðurinn er í vörslu Fagdeildar þvagfærahjúkrunarfræðinga. Reiknisár (ársins) er almanaksárið. Reikningar sjóðsins skulu endurskoðaðir af endurskoðendum fagdeildarinnar.

11. Reglur sjóðsins skulu yfirfarðar og endurmetnar árlega fyrir aðalfund fagdeildarinnar.

Úthlutunarnefnd Fagsjóðs

Hrafnhildur Baldursdóttir
13-G og 11-A
Formaður

Kristbjörg Jóhannsdóttir
13-D

Sesselja Jóhannsdóttir
13-G

Lilja Dögg Ármansdóttir
13-G 

Erla Dögg
13-G.
Varamaður