Viðbótarmeðferð//
Fagdeild um viðbótarmeðferð í hjúkrun
Fagdeildin var formlega stofnuð fimmtudaginn 23. september 2010
Árið 2000 fjallaði hjúkrunarþing Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um hjúkrunarmeðferð. Sérstaklega var fjallað um viðbótarmeðferðir sem þá hétu óhefðbundnar meðferðir. Nú 10 árum síðar hefur fagdeild um viðbótarmeðferð verið stofnuð. Samkvæmt lögum félagsins vinna fagdeildir að framgangi hjúkrunar á viðkomandi sviði í samvinnu við fagsvið félagsins og skulu m.a. vera stjórn félagsins og nefndum til ráðgjafar.
Áhugi hefur verið meðal almennings á síðari árum á því að nota meðferðir sem hafa í daglegu tali verið nefndar „óhefðbundnar meðferðir“ til að draga úr einkennum og bæta líðan. Óhefðbundnar meðferðir (alternative therpies) hafa verið nefndar viðbótarmeðferðir (complementary therapies) þegar þær eru notaðar innan heilbrigðiskerfisins sem meðferð. Viðbótarmeðferð vísar til meðferðar sem ekki hefur verið talin hluti af hefðbundinni heilbrigðisþjónustu en sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að nýtist samhliða hefðbundinni meðferð (NCCAM, 2011). Dæmi er þegar nálarstungur, slökun og nudd er notað til að draga úr aukaverkunum meðferðar.
Hjúkrunarfræðingar sem nota viðbótarmeðferðir starfa víða í heilbrigðisþjónustunni. Efla þarf frekari þekkingu meðal heilbrigðisstarfsmanna og almennings um hugmyndafræði, gagnsemi og gildi viðbótarmeðferða og hvetja til frekari notkunar innan heilbrigðiskerfisins sem stuðning við hefðbundna þjónustu.
Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga að hafa þekkingu á viðbótarmeðferðum til að geta veitt skjólstæðingum sínum bestu mögulega þjónustu hverju sinni. Heildrænt sjónarhorn viðbótarmeðferða fellur vel að þeirri hugmyndafræði hjúkrunar að nauðsynlegt sé að viðhafa heildræna sýn á einstaklinginn enda hafa hjúkrunarfræðingar verið framarlega í að rannsaka þessar meðferðir bæði hér á landi og erlendis. Viðbótarmeðferðir eru smá saman að afla sér frekari viðurkenningar en ýmislegt stendur í vegi fyrir því að þessar meðferðir og hugmyndafræði þeirra verði hluti af þeirri heilbrigðisþjónustu sem veitt er.
Margar meðferðir eru til og mismunandi hvernig þær eru flokkaðar. National Center for Complementary and Alternative Therapies skiftir óhefðbundnum og viðbótarmeðferðum niður í fjóra flokka: 1) Lífræn meðferðarform, t.d. jurtir og grös, 2) Meðferðarform sem byggjast á tengslum hugar og líkama, t.d. dans og yoga, 3) Meðferðir þar sem líkaminn er handleikinn t.d. nudd, og 4) Aðrar meðferðir t.d. orkumeðferðir og önnur lækningakerfi (NCCAM, 2011).
Tenglar:
www.nccam.nih.gov
www.mskcc.org/aboutherbs
www.integrativeonc.org

