1. grein

Nafn deildarinnar er Fagdeild um viðbótarmeðferð í hjúkrun. Fagdeildin starfar innan Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Heimili og varnarþing er í Reykjavík en umdæmið er landið allt. Lög Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga eru lög fagdeildarinnar.

2. grein

Allir aðilar að Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga sem hafa áhuga á viðbótarmeðferð geta orðið félagar. Þeir félagsmenn sem ekki greiða félagsgjöld í tvö ár í röð falla sjálfkrafa af félagaskrá.

Viðbótarmeðferð vísar til meðferðar sem ekki hefur verið talin hluti af hefðbundinni heilbrigðisþjónustu en sýnt hefur verið fram á með rannsóknum að nýtist samhliða hefðbundinni meðferð.

3. grein
Markmið fagdeildarinnar eru:

  • Að stuðla að viðurkenningu á notkun gagnreyndrar viðbótarmeðferðar innan heilbrigðiskerfisins sem hefur þann tilgang að efla heilsu, lina þjáningar, draga úr sjúkdómseinkennum og bæta lífsgæði.
  • Að vinna að auknu framboði viðbótarmeðferðar innan heilbrigðiskerfisins og tryggja aðkomu hjúkrunarfræðinga í þeim efnum.
  • Að stuðla að aukinni þekkingu almennings, sjúklinga, fagfólks og heilbrigðisyfirvalda á viðbótarmeðferð.
  • Að vera talsmaður viðbótarmeðferðar í samskiptum við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, aðrar heilbrigðisstéttir, fyrirtæki á heilbrigðissviði og stjórnvöld.
  • Að hvetja til aukinnar menntunar hjúkrunarfræðinga á sviði viðbótarmeðferðar, meðal annars með því að efla hlut slíkrar menntunar í hjúkrunarnámi.
  • Að stuðla að miðlun upplýsinga með útgáfu, netmiðlun, fundum, ráðstefnum og hvers konar fræðslu um viðbótarmeðferð.
  • Að efla skráningu, mat og rannsóknir á sviði viðbótarmeðferðar á Íslandi.
  • Að hafa yfirsýn yfir það starf sem unnið er á sviði viðbótarmeðferðar innan heilbrigðiskerfisins.
  • Að halda saman upplýsingum um meðferðaraðila, nám þeirra, starfstíma og vinnustað.
  • Að standa fyrir formlegu samstarfi við samsvarandi félög erlendis og að vera virkur þátttakandi í alþjóðlegri samvinnu hjúkrunarfræðinga á sviði viðbótarmeðferðar.

4. grein

Aðalfundur skal haldinn árlega í mars. Aðalfund skal boða skriflega eða með tölvupósti með tveggja vikna fyrirvara hið minnsta. Fundarboði skal fylgja dagskrá og tillögur sem ákveðið hefur verið að leggja fram. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað. Framboðsrétt til stjórnar og atkvæðisrétt á aðalfundi hafa félagsmenn sem hafa greitt félagsgjöld á yfirstandandi starfsári. Á dagskrá aðalfundar skal að jafnaði vera eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar
  2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram
  3. Kosning stjórnar og skoðunarmanna reikninga
  4. Árgjald ákveðið
  5. Önnur mál

5. grein

Stjórn deildarinnar skal skipuð fimm félagsmönnum; formanni, ritara, gjaldkera og tveimur meðstjórnendum. Tveir varamenn eru kjörnir og hafa þeir heimild til setu á stjórnarfundum. Stjórnarkjör fer fram á aðalfundi í tvennu lagi. Fyrst er formaður kosinn sérstakri kosningu, síðan er kosið um fjóra stjórnarmenn og tvo varamenn. Stjórn skiptir með sér verkum. Kjörtímabilið er tvö ár og er endurkjör heimilt. Þó skal enginn stjórnarmaður sitja lengur en sex ár samfleytt í stjórn.

6.grein

Ákvörðun um slit fagdeildarinnar verður tekin á aðalfundi fagdeildarinnar og skal einfaldur meirihluti ráða og skulu eignir félagsins renna til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga.

7. grein

Starfsreglur þessar öðlast gildi þegar þær hafa verið samþykktar af stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Starfsreglum má aðeins breyta á aðalfundi og skulu skriflegar tillögur um breytingar á reglum berast stjórn eigi síðar en fjórum vikum fyrir aðalfund.

Endurskoðað af stjórn fagdeildar og samþykkt á aðalfundir í mars 2011