Viðbótarmeðferðir
Fagdeildin leggur fram ákveðin viðmið varðandi viðbótarmeðferðir sem hjúkrunarfræðingar nota:
Meðferðin skal vera gagnreynd.
Meðferðin valdi ekki skaða.
Meðferðin skal einungis veitt af hjúkrunarfræðingi sem hefur til þess viðurkennda menntun og/eða þjálfun frá fagaðila.
Markmið fagdeildarinnar eru:
· Að stuðla að viðurkenningu á notkun gagnreyndra viðbótarmeðferða innan heilbrigðiskerfisins sem hafa það að markmiði að efla heilsu, lina þjáningar, draga úr sjúkdómseinkennum og bæta lífsgæði.
· Að vinna að auknu framboði viðbótarmeðferða innan heilbrigðiskerfisins og tryggja aðkomu hjúkrunarfræðinga í þeim efnum.
· Að stuðla að aukinni þekkingu almennings, sjúklinga, fagfólks og heilbrigðisyfirvalda á viðbótarmeðferðum.
· Að vera talsmaður viðbótarmeðferða í samskiptum við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, aðrar heilbrigðisstéttir, fyrirtæki á heilbrigðissviði og stjórnvöld.
· Að hvetja til aukinnar menntunar hjúkrunarfræðinga á sviði viðbótarmeðferða, meðal annars með því að efla hlut slíkrar menntunar í hjúkrunarnámi.
· Að stuðla að miðlun upplýsinga með útgáfu, netmiðlun, fundum, ráðstefnum og hvers konar fræðslu um viðbótarmeðferðir.
· Að efla skráningu, mat og rannsóknir á sviði viðbótarmeðferða á Íslandi.
· Að hafa yfirsýn yfir það starf sem unnið er á sviði viðbótarmeðferða innan heilbrigðiskerfisins.
· Að halda saman upplýsingum um meðferðaraðila, nám þeirra, starfstíma og vinnustað.
· Að standa fyrir formlegu samstarfi við samsvarandi félög erlendis og að vera virkur þátttakandi í alþjóðlegri samvinnu hjúkrunarfræðinga á sviði viðbótarmeðferða
