Úthlutun orlofsstyrkja og orlofshúsa er lokið fyrir sumarið 2004. //
Búið er að úthluta orlofshúsum og orlofsstyrkjum fyrir sumarið 2004. Í boði voru 330 orlofsstyrkir og 136 vikur í orlofshús. Alls bárust 1.021 umsóknir. Synjun fengu 550 félagsmenn.
Frestur til að ganga frá greiðslum fyrir orlofshúsin er til 7. maí n.k. eftir það verða þau hús sem ekki ganga út sett inn á orlofsvefinn og verður þar hægt að panta og ganga frá greiðslu. Fyrstur pantar - fyrstur fær.
Þó nokkrar fyrirspurnir koma á skrifstofuna varðandi fyrirkomulag á úthlutun, félagsmenn eru að spyrja eftir hverju er farið við úthlutun.
Félagsmaður í starfi hjá vinnuveitanda sem greiðir í Orlofssjóðinn, ávinnur sér 12 punkta ár ári. Við hverja úthlutun þarf að greiða fyrir með punktum, ýmist 20 p. eða 30 p. eftir tímabilum.
Flestir punktar á félagsmann í félaginu eru núna 148 punktar.
Í þessari úthlutun voru minnstu punktarnir til að fá orlofsstyrkinn 74 punktar. Þeir félagsmenn sem áttu færri punkta en 74 fengu því ekki styrk að þessu sinni.
Þeir sem fengu synjunarbréf fyrir orlofshús, stafar af því að einhver annar félagsmaður var með fleiri punkta og sótti um sama orlofshús á sama tíma og var því með sterkari stöðu.
Soffía Sigurðardóttir
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
