Ráðstefna í Háskóla Ísalnds um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum//
Ráðstefna í Háskóla Íslands um rannsóknir í líf- og heilbrigðisvísindum Þetta er í tólfta sinn sem þessi ráðstefna er haldin en hún er nú á vegum læknadeildar, tannlæknadeildar, lyfjafræðideildar og hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands. Umsjón með ráðstefnunni hefur Vísindanefnd læknadeildar, tannlæknadeildar og lyfjafræðideildar Háskóla Íslands auk fulltrúa frá hjúkrunarfræðideild. Staðsetning og tími: Ráðstefnan verður haldin í Öskju dagana 4. og 5. janúar 2005. Þátttakendur: Kennarar og starfsmenn læknadeildar, tannlæknadeildar, lyfjafræðideildar, hjúkrunarfræðideildar og tengdra stofnana auk starfsfólks Landspítala háskólasjúkrahúss. Þau sem vinna að rannsóknum í samvinnu við starfsfólk deildanna eru jafnframt velkomin, sama gildir um kennara og starfsmenn annarra deilda Háskóla Íslands. Þátttökugjald: Almennt gjald kr. 4.000 en kr. 1500 fyrir háskólanema Tekið við greiðslu með VISA/Eurocard/MasterCard. Beiðni um greiðslu fyrir þátttakendur af hálfu stofnunar, deildar eða fyritækis þarf að berast skriflega til framkvæmdastjóra. Erindi og veggspjöld: Gert er ráð fyrir stuttum erindum (10 mínútur hvert erindi, með fyrirspurnum, skiptist þannig: sjö mínútur í kynningu og þrjár í umræðu) og spjaldakynningu (stærð spjalda 90 x 120 cm). Höfundar taki fram hvort þeir óski eftir að halda erindi eða sýna veggspjald en Vísindanefnd áskilur sér rétt til að meta hvort verkefni verði kynnt sem erindi eða veggspjald. Ágrip: Ágrip erinda og veggsspjalda verða gefin út í Fylgiriti Læknablaðsins sem mun koma út fyrir ráðstefnuna. Ágripum verði skilað rafrænt til framkvæmdastjóra ráðstefnunnar: birna@birna.is Leiðbeiningar fyrir ágrip: Vísindanefnd áskilur sér rétt til að hafna innsendum ágripum sem ekki uppfylla ofangreind skilyrði. Skilafrestur fyrir ágrip erinda og veggspjalda er 22. október 2004. Tæknibúnaður: Notaður verður tölvuskjávarpi við flutning erinda. Fyrirkomulag á kynningu veggspjalda verður auglýst síðar. Skráning: www.hi.is/nam/visindanefnd Framkvæmdastjórn: Menningarfylgd Birnu ehf, Birna Þórðardóttir. Netfang: birna@birna.is Sími: 862 8031 Elín Soffía Ólafsdóttir Gísli Sigurðsson Jórunn Erla Eyfjörð María H. Þorsteinsdóttir Sigfús Þór Elíasson Þór Eysteinsson og Guðrún Kristjánsdóttir
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
