Karlmannleg ímynd hjúkrunar. Fyrirlestur á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði//
Karlmannleg ímynd hjúkrunar Fyrirlestur á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði Fyrirlesturinn flytur Þórður Kristinsson mannfræðingur og stundakennari við HÍ. Karlar eru rétt rúmlega 1% starfandi hjúkrunarfræðinga á Íslandi. Í fyrirlestrinum verður fjallað um hluta af meistararitgerð Þórðar Kristinssonar um upplifun karl-hjúkrunarfræðinga í starfi og í íslensku samfélagi. Í ritgerð sinni skoðar Þórður sýnileika og upplifun karla í hjúkrun í sögulegu samhengi, út frá viðtölum og vettvangsrannsóknum þar sem lögð er áhersla á kyn sem áhrifaþátt í stöðu þeirra sem hjúkrunarfræðinga. Hugtökunum eðlishyggja, ráðandi karlmennska og kynlegt félagslegt auðmag er beitt til þess að skoða hugmyndirnar sem liggja að baki kynbundinni mismunun gagnvart körlum í hjúkrun. Erindið tekur aðallega á mismunandi ímyndum hjúkrunar og hvernig karlar í starfinu staðsetja sig út frá þeim og líta á hjúkrun út frá eigin forsendum. Þar takast á staðalmyndir hjúkrunarfræðinga í dægurmenningu okkar, í orðræðum samfélagsins og í ímyndunarsköpun hjúkrunarfræðinganna sjálfra. Farið verður yfir hvernig ímyndin af stétt hjúkrunarkvenna var mótuð meðal annars af Florence Nightingale og fylgjendum hennar á Viktoríutímanum og hvernig sú ímynd var miðlæg í uppgangi hjúkrunar á Íslandi. Þá verður skoðað hvernig áherslur hjúkrunar færðust frá því að hjúkrunarfræðingar ættu umfram allt að vera ,,góðar konur? yfir á áherslu á nám og sérfræðiþekkingu. Út frá því efni verður fjallað um hvernig ímynd hjúkrunar togast á milli þessara tveggja póla og hvernig karlar í hjúkrun virðast varla vita í hvorn fótinn þeir eiga að stíga þegar talið berst að virðingu hjúkrunar. Ímynd hjúkrunar og ímynd karlmennsku virðist ekki í fljótu bragði eiga mikla samleið. Karlar sem fara í hjúkrun eru taldir óeðli(s)legir af þeim sem þekkja ekki hjúkrun. Ríkjandi skoðun samfélagsins virðist vera sú að í hjúkrun sé ekkert sem höfðar til karla. Vegna þessa gætir stundum misskilnings á kyngervi karl-hjúkrunarfræðinga. Talið er að karlar í hjúkrun hljóti að vera sérlega kvenlegir fyrst þeir beita sér á sviði þar sem konur eru svo til allsráðandi. Karlar eiga eðli(s)lega að hafa áhuga á karlkenndum hlutum. Innan stéttarinnar finna þeir fyrir sömu hugmyndum þar sem þeir eru hvattir til þess að nýta sér karlkennt félagslegt auðmagn sitt sem þeir og gera.
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
