Starfsfólk St. Jósefsspítala og Sólvangs lýsa óánægju og fordæma vinnubrögð heilbrigðisráðherra//
Yfirlýsing starfsmanna St. Jósefsspítala Sólvangs Hafnarfirði. 05.01.2009. "Varðandi umræðu um breytingu á starfsemi stofnunarinnar. Starfsólk St.Jósesfsspítala Sólvangs Hafnarfirði , lýsir yfir megnri óánægju og fordæmir vinnubrögð heilbrigðisráðherra Guðlaugs Þórs Þórðarsonar. Samskiptaleysi og skortur á upplýsingum til starfsfólks hefur skapað óvissu og kvíða um framtíð okkar og skjólstæðinga okkar".
,,Við erum að gagnrýna samskiptaleysi og skort á upplýsingum til starfsfólks en óvissan hefur skapað óvissu kvíða um framtíð okkar og skjólstæðinga okkar," segir Ragnhildur Jóhannsdóttir deildarstjóri á skurðdeild spítalans.
Fram hefur komið í fjölmiðlum að til standi að flytja ýmsa starfsemi frá St. Jósefsspítala yfir til annarra sjúkrahúsa. Rætt hefur verið um að breyta spítalanum í öldurnarstofnun. Ekki hefur þó verið tilkynnt um breytingarnar. ,,Stjórnendur vita ekkert frekar en við," segir Ragnhildur.
Ragnhildur segir að óvissan hafi áhrif á fjölda fólks sem bíði eftir að komast í aðgerðir á spítalanum. ,,Þær aðgerðir eru lítið framkvæmdar annars staðar," segir Ragnhildur og nefnir ýmsar kvensjúkdómaaðgerðir máli sínu til stuðnings.
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
