Inflúensa A(H1N1) ekki greind í sýnum frá sex einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast//
Af www.landlaeknir.is
Niðurstöður úr alls sex sýnum, sem tekin voru til rannsóknar síðastliðinn föstudag og laugardag frá einstaklingum sem grunur lék á að hefðu smitast af inflúensu A(H1N1), sýna að þeir eru ekki sýktir af hinni nýju inflúensu. Allir í viðkomandi hópi tengdust manninum, sem greindist með inflúensuna fyrir helgi, fjölskylduböndum. Fylgst verður áfram með heilsufari sexmenninganna næstu daga og tekin ný sýni til rannsóknar ef vart verður inflúensulíkra einkenna hjá einhverjum þeirra. Ekki er ástæða til að gera aðrar ráðstafanir.
- Heilbrigðisyfirvöld leggja áherslu á að læknar og aðrir heilbrigðisstarfsmenn verði áfram vakandi fyrir því að taka sýni úr sjúklingum með inflúensulík einkenni og senda til greiningar á veirufræðideild Landspítala.
- Áfram er í gildi hættustig hér á landi samkvæmt viðbragðsáætlun um inflúensufaraldur.
- Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensunnar eru birtar á www.influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á www.almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi.
Viðbúnaðaráætlun og tilheyrandi ráðstafanir vegna farsótta eru dagskrárefni sameiginlegs fundar sóttvarnalækna og lögreglustjóra á landinu öllu í Reykjavík eftir hádegi í dag. Til þessa fundar var boðað áður en inflúensa A (H1N1) var staðfest hérlendis.
| |
12.500 tilfelli staðfest í heiminum
Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A(H1N1) í heiminum í morgun alls 12.501 í 46 ríkjum (sjá nánar sundurliðun aftast í þessari tilkynningu og á meðfylgjandi skýringarkorti). Langflest flensutilfellanna eru í Bandaríkjunum, eða 6.552, en þar eru líka meðtalin líkleg tilvik þar í landi.
Staðfest dauðsföll vegna inflúensunnar eru nú 91 talsins, langflest í Mexíkó eða 80. Níu dauðsföll eru staðfest í Bandaríkjunum, eitt í Kanada og eitt í Kosta Ríka. Flestir þessara einstaklinga voru með undirliggjandi sjúkdóma sem geta gert sýkingar af völdum inflúensu alvarlegri en ella.
Nánari upplýsingar
Tilkynningar um viðbúnað vegna inflúensu A(H1N1) eru birtar á www.influensa.is, bæði á íslensku og ensku, og á www.almannavarnir.is. Þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar um inflúensuna og ráðstafanir í því sambandi, einnig á www.landlaeknir.is og á heimasíðum Sóttvarnarstofnunar Evrópusambandsins - ECDC, http://www.ecdc.europa.eu/ og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar - WHO, http://www.who.int/en/.
|
Ríki innan ESB og EFTA |
Staðfest tilvik |
Dauðsföll |
|
Austurríki |
1 |
|
|
Belgía |
7 |
|
|
Bretland |
133 |
|
|
Danmörk |
1 |
|
|
Finnland |
2 |
|
|
Frakkland |
16 |
|
|
Þýskaland |
17 |
|
|
Grikkland |
1 |
|
|
Ísland |
1 |
|
|
Írland |
1 |
|
|
Ítalía |
19 |
|
|
Holland |
3 |
|
|
Noregur |
4 |
|
|
Pólland |
3 |
|
|
Portúgal |
1 |
|
|
Spánn |
133 |
|
|
Svíþjóð |
3 |
|
|
Sviss |
3 |
|
|
Alls í ESB/EFTA |
349 |
|
|
Ríki utan ESB og EFTA-svæðisins |
Staðfest tilvik |
Dauðsföll |
|
Argentína |
2 |
|
|
Ástralía |
16 |
|
|
Bandaríkin* |
6.552 |
9 |
|
Brasilía |
9 |
|
|
Chile |
44 |
|
|
Kanada |
805 |
1 |
|
Kólumbía |
12 |
|
|
Kosta Ríka |
28 |
1 |
|
Kúba |
4 |
|
|
El Salvador |
6 |
|
|
Ekvador |
10 |
|
|
Filippseyjar |
2 |
|
|
Gvatemala |
4 |
|
|
Hondúras |
1 |
|
|
Kína |
15 |
|
|
Indland |
1 |
|
|
Ísrael |
7 |
|
|
Japan |
338 |
|
|
Malasía |
2 |
|
|
Mexíkó |
4.174 |
80 |
|
Nýja Sjáland |
9 |
|
|
Panama |
76 |
|
|
Perú |
21 |
|
|
Rússland |
1 |
|
|
Suður-Kórea |
3 |
|
|
Tyrkland |
2 |
|
|
Tæland |
2 |
|
|
Tævan |
6 |
|
|
Alls utan ESB/EFTA-svæðisins |
12.152 |
91 |
|
Alls staðfest tilfelli/dauðsföll 25. maí 2009 |
12.501 |
91 |
Heimild: Sóttvarnastofnun Evrópusambandsins
http://www.ecdc.europa.eu/
Sóttvarnalæknir
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
