Ályktað um skerðingu á fjárframlögum til Landspitala//
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga varar við þeim alvarlegu afleiðingum sem stórfelld skerðing á fjárframlögum til Landspítala, samkvæmt nýframlögðu fjárlagafrumvarpi, felur í sér. Undanfarin ár hefur Landspítalanum verið gert að hagræða svo í rekstri að nú er komið að þolmörkum. Ef boðuð lækkun á fjárframlögum til Landspítalans nær fram að ganga mun það leiða til verulega skertrar þjónustu við sjúklinga og þar með ógna öryggi þeirra. Sá árangur sem náðst hefur í heilbrigðisþjónustunni byggir fyrst og fremst á þekkingu heilbrigðisstarfsmanna. Niðurskurðurinn sem nú er boðaður getur leitt til þess að dýrmæt, sérhæfð þekking starfsmanna tapist úr landi, sem tekur ár og áratugi að byggja upp að nýju.
Landspítali er sjúkrahús allra landsmanna og það öryggisnet sem þjóðin reiðir sig á. Því er nauðsynlegt að Landspítalanum sé tryggt það rekstrarfé sem þarf til að mæta þeim kröfum sem til hans eru gerðar og viðhalda þeim árangri sem náðst hefur í heilbrigðisþjónustunni.
Stjórn Fíh sendi í lok júní síðastliðnum heilbrigðisráðherra áherslur og tillögur sínar vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Þar var lögð áhersla á öryggi og gæði þjónustunnar, endurskoðun á heilbrigðiskerfinu og greiðslufyrirkomulagi vegna heilbrigðisþjónustu, forgangsröðun verkefna og sameiningu heilbrigðisstofnana. Stjórn Fíh ítrekar þessar tillögur og vilja til frekari samvinnu og samráðs í þeim erfiðu verkefnum sem framundan eru.
F.h. stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
s. 540-6400 og 861-2892
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
