Ígræðsla líffæra flyst til Gautaborgar//
Líffæraígræðslur Íslendinga flytjast frá Kaupmannahöfn til Gautaborgar um áramótin. Samningur um ígræðslu líffæra við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg var undirritaður 26. október. Samningurinn var gerður að ósk heilbrigðisráðuneytisins eftir ráðgjöf frá Líffæraígræðslunefnd sem lagði til að gengið yrði til samninga við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg um líffæratöku og ígræðslu líffæra fyrir íslenska sjúklinga. Fulltrúi Sjúkratryggingastofnunar Íslands undirritaði samninginn fyrir hönd heilbrigðisyfirvalda hér en af hálfu háskólasjúkrahússins í Gautaborg er það Sahlgrenska International Care AB, og Sahlgrenska I.C. sem formlega gera samninginn. Hann er gerður að undangengnum samningaviðræðum við helstu sjúkrahús á Norðurlöndunum, hann gildir til 2010 og er til eins árs í senn, en framlengist sjálfkrafa um ár sé honum ekki sagt upp sex mánuðum áður en hann á að renna úr gildi. Samningur sem hefur verið í gildi um ígræðslu líffæra við Rigshospitalet í Kaupmannahöfn rennur úr gildi um áramótin. Með samningnum er íslenskum sjúklingum tryggður lágmarksbiðtími eftir ígræðslu líffæra. Biðtími samkvæmt honum er mun styttri en var í fyrri samningi og kostnaður við nýjan samning næstu fimm árin miðað við tilteknar forsendur um þörf fyrir líffæri er rúmar sex hundruð milljónir króna á ári. Gert er ráð fyrir að samningurinn við Sahlgrenska verði um 18% ódýrari en samningurinn sem nú er í gildi. Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og Marika Qvist, framkvæmdastjóri Sahlgrenska I.C. í Gautaborg skrifuðu undir samninginn sem
Álfheiður Ingadóttir, heilbrigðisráðherra, staðfesti með undirskrift sinni. (frétt frá heilbrigðisráðuneytinu)
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
