Ályktun stjórnar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga um flutning hjúkrunarheimila//
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) leggst alfarið gegn þeim hugmyndum ríkisstjórnarinnar að færa alla þjónustu við aldraða á hjúkrunarheimilum til félags- og tryggingamálaráðuneytis. Stjórnin hvetur alþingismenn til að greiða atkvæði gegn þessum flutningi þegar frumvarp til fjárlaga 2010 verður tekið til afgreiðslu á Alþingi. Stefna stjórnvalda er og hefur verið að gera öldruðum kleift að búa sem lengst á eigin heimili með viðeigandi aðstoð. Sú stefna leiðir af sér að þeir öldruðu einstaklingar sem flytjast á hjúkrunarheimili eru eldri en áður var og þeir glíma alla jafna einnig við fjölþættari og alvarlegri heilsufarsvandamál en áður. Þeir flytjast á hjúkrunarheimili til að fá hjúkrun og aðra heilbrigðisþjónustu en ekki sem félagslegt búsetuúrræði. Vistunarmat liggur til grundvallar flutnings á hjúkrunarheimili enda hafa önnur úrræði svo sem sérhæfð dagvist, hvíldarinnlögn og heimahjúkrun verið reynd til fulls. Stjórnvöld boða að fagleg stjórnun og eftirlit með hjúkrunarheimilum verði áfram hjá heilbrigðisráðuneytinu. Stjórn Fíh leggur áherslu á að fagleg og fjárhagsleg yfirstjórn fari saman og falli undir eitt og sama ráðuneytið. Slík skipan eykur líkur á faglegri og réttlátri þjónustu. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar kemur fram að stefnt sé að því að málefni aldraðra færist til sveitarfélaga samhliða því að heilbrigðisráðuneyti og félags- og tryggingamálaráðuneyti sameinist. Stjórn Fíh skorar því á stjórnvöld að hætta við boðaðan flutning hjúkrunarheimila frá heilbrigðisráðuneyti til félags- og tryggingamálaráðuneytis nú um áramótin.
Til baka
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
