Fjölbreytt námskeið á vorönn//
Hjúkrunarfræðingar í samvinnu við Fíh bjóða upp á fjölbreytt námskeið á vorönn. Um er að ræða bæði ný og endurtekin námskeið frá haustönn. Skráning er hafin á námskeiðin.
Nánari upplýsingar um námskeiðin er að finna undir Fagsvið → Námskeiðaskrá
Námskeiðið Réttindi sjúklinga verður haldið 20. janúar n.k. Um er að ræða nýtt námskeið þar sem farið er yfir réttindi sjúklinga og ábyrgð þeirra á eigin heilsu út frá lögum og reglugerðum og hvernig réttindamál sjúklinga standa í dag í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Samskiptanámskeið verður haldið á Akureyri í janúar og í Reykjavík í febrúar. Um er að ræða tveggja daga námskeið um samskipti við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Tekið er mið af rannsóknum um samskipti hjúkrunarfræðinga, sjúklinga og aðstandenda.
Bráðahjálp fullorðinna hentar sérstaklega hjúkrunarfræðingum sem starfa utan sjúkrahúsa þar sem sérhæfð aðstoð getur verið lengur að berast. Einnig hjúkrunarfræðingum sem vilja auka þekkingu sína og færni í vöktun og meðferð bráðveikra sjúklinga. Námskeiðið, sem hefur verið endurskoðað og lengt frá því í haust, verður haldið laugardaginn 21. janúar.
Námskeið um sár og sárameðferð verður haldið dagana 16. og 17. febrúar. Nú þegar eru um helmingur sæta á námskeiðinu bókuð.
Við starfslok er námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga sem eru að hætta eða eru hættir störfum. Námskeiðið verður haldið í apríl og verður nánar auglýst síðar.
Til baka
Fréttasafn
2012
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
