Hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans gekk 12 kílómetra á einni vakt//
Skv. frétt Morgunblaðsins sýndi skrefamælir að hjúkrunarfræðingur á bráðadeild Landspítalans gekk 12 kílómetra á einni erilsamri vakt í haust. Mælingin verður endurtekin en hjúkrunarfræðingar vita að þeir þurfa að ganga mikið, enda deildin stór og starfið erilsamt. Verið að er taka nýtt kerfi í notkun sem á að spara sporin.
„Það er auðvitað ekkert að marka eina mælingu. Þetta verður rannsakað betur. En við vitum að við göngum mikið,“ segir Ragna Gústafsdóttir, hjúkrunardeildarstjóri á bráðadeild Landspítalans í samtali við Morgunblaðið.
Verið er að taka í notkun svokallaða straumlínustjórnun á bráðadeildinni, aðferð sem var hönnuð hjá Toyota-verksmiðjunum með það að markmiði að spara sporin. Á nýjum Landspítala stendur einnig til að taka í notkun rörpóst enda senda menn ekki lyf gegnum tölvu eða síma.
Til baka
Fréttasafn
2012
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
