102:Þessi frétt er runnin út og mun ekki birtast!

Greiðslur félagsmanna til vinnudeilusjóðs Fíh//


Á aðalfundi Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga 19. maí  2011 var samþykkt tillaga stjórnar vinnudeilusjóðs um að hefja að nýju innheimtu í sjóðinn. Samþykkt var að félagsmenn greiði 0,15% af dagvinnulaunum sínum í vinnudeilusjóð, til að styrkja félagsmenn í kjarabaráttu ef til verkfallsaðgerða kæmi. Fjárhæðin er innheimt með félagsgjaldi af launum félagsmanna, en launagreiðendur leggja framlög  í aðra sjóði félagsins skv. kjarasamningi, þ.e. í orlofssjóð, starfsmenntunarsjóðs, vísindasjóð og styrktar- eða sjúkrasjóð. Greiðsla í vinnudeilusjóð er aðeins innt af hendi þeirra félagsmanna sem þiggja laun skv. kjarasamningi félagsins.

Vakin er athygli á því að á launaseðlum flestra hjúkrunarfræðinga verður gjald til vinnudeilusjóðs sett saman við félagsgjald og í þeirri línu á launaseðli mun því standa 1,65%. Rétt er að ítreka að félagsgjald til Fíh hefur ekki hækkað, viðbótin rennur alfarið í vinnudeilusjóðinn.

Fíh hvetur félagsmenn til að nýta sér rétt sinn í hina ýmsu sjóði félagsins, sem launagreiðendur greiða í. Félagsmenn eiga til að mynda rétt á eftirfarandi styrkjum:

-          A-hluta styrk úr vísindasjóði í mars ár hvert. Styrkurinn er 95% af félagsgjöldum og greiðist sjálfkrafa án umsóknar.

-          Styrkur úr starfsmenntunarsjóði til endur- og símenntunar, að fjárhæð 40 þúsund kr. árlega.

-          Styrkir úr styrktar- eða sjúkrasjóði:

-          Líkamsræktarstyrkur að fjárhæð kr. 20.000 árlega

-          Styrkur vegna krabbameinsskoðunar að fjárhæð kr. 3.500 árlega

-          Fæðingarstyrkur að fjárhæð kr. 200.000 miðað við fullt starf

-          Styrkir vegna tannviðgerða, sjúkraþjálfunar, gleraugna o.fl.

-          Sjúkradagpeningar við lok veikindaréttar, einnig vegna veikinda barns eða maka

-          Styrkir úr orlofssjóði:

-          Niðurgreiðsla á leigugjöldum orlofshúsa

-          Niðurgreiðsla á gjafabréfum vegna flugmiða

-          Niðurgreiðsla á hótelmiðum, afsláttarmiðum í Hvalfjarðargöng, veiðikortum o.fl. 


Til baka