102:Þessi frétt er runnin út og mun ekki birtast!

Hjúkrunarfræðingur með mynd í heimspressunni//

 

Jónína Guðrún Óskarsdóttir er hjúkrunarfræðingur á Fáskrúðsfirði og hjúkrunarstjóri Heilsugæslunnar í Fjarðabyggð og Djúpavogslæknishéraði. Hún er áhugaljósmyndari til margra ára og hefur mikinn áhuga á að taka norðurljósamyndir. Myndin sem hefur farið um allan heim tók hún fyrir helgi þegar birti til á Austfjörðum á sama tíma og norðurljósin skörtuðu sínu fegrusta. Það gerðist í kjölfar mikils sólgoss. Jónína er í samskiptum við erlenda áhugamenn um norðurljós og sendi umrædda mynd sem síðan birtist á vef þeirra. Myndin hefur svo verið endurbirt á vefmiðlum á borð við Associated Press, BBC, Bild og der Spiegel. Bandariska geimferðarstofnunin NASA hefur einnig sýnt áhuga á myndinni.

Skoða má myndina hér:

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/03/10/augu_heimsins_a_mynd_fra_islandi/


Til baka