102:Þessi frétt er runnin út og mun ekki birtast!

Bókin Family Nursing in Action til sölu á skrifstofu Fíh á sérstöku tilboðsverði kr. 4000//

Nýverið kom bókin Family Nurisng in Action út á vegum Háskólaútgáfunnar.  Ritstjórar bókarinnar eru Erla Kolbrún Svavarsdóttir og Helga Jónsdóttir. 

Í umfjöllun Maureen Leahey um bókina í nýjasta hefti tímaritsins Journal of Family Nursing, kemur fram að bókin sé sérlega áhugaverð fyrir alþjóða hjúkrunarsamfélagið og hafi mikið notagildi fyrir kennslu í grunn-og framhaldsnámi í hjúkrunarfræði.

Bókin Family Nursing in Action skiptist í þrjá hluta þar sem lögð er áhersla á (a) líkön sem hægt er að styðjast við í klínísku starfi; (b) niðurstöður meðferðarrannsókna í hjúkrun eru kynntar; og (c) nýjum áherslum í hjúkrunarrannsóknum lýst innan heilbrigðisstofnana.  Í bókinni eru 15 kaflar um fjölskylduhjúkrun eftir þekkta fræðimenn á sviði fjölskylduhjúkrunar. Í fyrsta hluta eru fimm kaflar sem fjalla um kenningar og aðferðafræðileg álitamál í fjölskylduhjúkrun. Í öðrum hluta er fimm meðferðarrannsóknum lýst. Þær fjalla um meðferðir fyrir fjölskyldur ungra barna, unglinga, fullorðinna og aldraðra. Í síðasta hlutanum er fjallað um þjónustuform fyrir fjölskyldur með margvíslegan langvinnan heilsufarsvanda. Höfundar bókarkaflanna eru 28 frá fimm löndum. Hver kafli var ritrýndur af tveimur „blindum“ ritrýnum úr alþjóða fræðasamfélaginu í hjúkrun. Framan við hvern bókarhluta er ávarp og aðfararorð valinkunns fræðimanns í fjölskylduhjúkrun. Bókin er gefin út af Háskólaútgáfunni, er 406 bls að lengd með atriðaorðaskrá, og ítarlegum upplýsingum um höfunda bókarinnar.

 


Til baka