Fréttasafn eftir mánuðum//

24.03.2004  //

Mikill áhugi á sögu hjúkrunar

Margir hafa brugðist við viðtali við Margréti Guðmundsdóttur, sagnfræðing, sem birtist í nýjasta tölublaði Tímarits hjúkrunarfræðinga og haft samband við félagið.

24.03.2004  //

Vísindasjóður A-hluti

Vegna mikilla fyrirspurna er rétt að taka fram að A-hluti Vísindasjóðs verður lagður inn á bankareikninga hjúkrunarfræðinga í SPRON í lok mars. Bankinn mun senda öllum bréf þar að lútandi.

24.03.2004  //

Málstofa á vegum Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði

Innleiðing kjörhjúkrunar:Hver eru áhrifin á hjúkrunina frá sjónarhorni hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða? Fyrirlesturinn flytur Dóróthea Bergs, MSc hjúkrunarfræðingur á taugaendurhæfingardeild LSH og lektor við hjúkrunarfræðideild HÍ Málstofan verður haldin mánudaginn 29. mars, 2004, kl. 12:15 í stofu 103 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríksgötu 34 og er öllum opin

24.03.2004  //

Samstarf BHM og LSH

Miðstjórn Bandalags háskólamanna hefur ákveðið að ganga til formlegs samstarfs við stjórnendur Landspítala háskólasjúkrahúss vegna fjárhagsvanda sjúkrahússins.

17.03.2004  //

Skráning er hafin á ráðstefnuna Hjúkrun 2004.

Ráðstefna um rannsóknir í hjúkrun verður haldin dagana 29.-30. apríl 2004 á Nordica hotel, Reykjavík.

15.03.2004  //

Námskeið til að sækja um í B-Hluta Vísindasjóðs Fíh

Á LSH 18. mars kl. 13-15 heldur Auðna Ágústsdóttir stutt námskeið fyrir hjúkrunarfræðinga og ljósmæður um að sækja um styrki til vísindastarfa. Sérstaklega verður rætt um umsóknir í B-hluta Vísindasjóðs Fíh.

09.03.2004  //

08.03.2004  //

Samkomulag vegna heimahjúkrunar

Síðdegis í gær náðist samkomulag milli Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Sjúkraliðafélags Íslands fyrir hönd þeirra hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem létu af störfum þann 1. mars s.l. og stjórnenda Heilsugæslunnar í Reykjavík.

02.03.2004  //

Alþjóðadagur kvenna fyrir friði og jafnrétti

Opinn fundur mánudaginn 8.mars 2004 kl.17 í BSRB-salnum, Grettisgötu 89 Fundarstjóri: Ína Jónasdóttir, varaform. SFR