Fréttasafn eftir mánuðum//
Hjúkrunarráð LSH býður til fræðslufundar
Miðvikudaginn 4. maí kl: 14.00-14.40 í Hringsal barnaspítala - Innleiðing slökunar sem hjúkrunarmeðferð
Með hækkandi sól og meiri hita í loftinu er búið að ákveða golfmót hjúkrunarfræðinga fyrir árið 2005.
Fyrra mótið verður haldið í júní og hið seinna í ágúst
Fjársýslan við breytingar vegna nýju samninganna. Stefnt að því að greiða eftir þeim um þessi mánaðarmót.
Stefnt er að því að ríkisstarfsmenn í þeim aðildarfélögum BHM sem samþykkt hafa samkomulagið frá 28. febrúar fái greitt samkvæmt þessum nýju samningum nú um komandi mánaðamót. Samkomulagið gildir frá 1. febrúar síðastliðnum, en að auki kemur eingreiðsla, sem ætlað er að mæta samningsleysi á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. febrúar á þessu ári. Hjá Fjársýslu ríkisins fengust þær upplýsingar að unnið væri á fullu við þær breytingar sem gera þyrfti og vonast væri til að það gengi allt upp fyrir mánaðamótin.
Fjármálaráðaherra hefur staðfest samkomulagið gagnvart þeim félögum sem hafa samþykkt það í atkvæðagreiðslu.
Fjármálaráðherra hefur staðfest samkomulagið milli tuttugu og fjögurra aðildarfélaga BHM og samninganefndar ríkisins, um breytingar og framlengingu á kjarasamningum félaganna við ríkið, sem undirritað var þann 28. febrúar síðastliðinn.
Samið við launanefnd sveitarfélaga
Síðasta vetrardag, 20. apríl, skrifaði samninganefnd Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) og fulltrúar Launanefndar sveitarfélaga (LN) undir nýjan kjarasamning.
Greiðslur skv. samningi Fíh og ríkis
Fjöldi hjúkrunarfræðinga hefur hringt á skrifstofu félagsins og spurt um stöðu samninga við ríkið í ljósi frétta um að Stéttarfélag sálfræðinga hafi fellt samninginn.
Hjúkrun á skurðstofum könnuð. Þórunn Kjartansdóttir hlýtur styrk úr Rannsóknarsjóði Klinidrape og EORNA
Þórunn Kjartansdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, hlaut nýverið styrk úr Rannsóknarsjóði Klinidrape og EORNA vegna verkefnis sem hún vann að við að undirbúa skráningu hjúkrunar á skurðstofu samkvæmt ákeðnu flokkunarkerfi, Nursing Intervention Cassifications (NIC), og viðurkennt er af landlæknisembættinu.
Barnaverndarstofa efnir til ráðstefnu um MST meðferðina hinn 12. maí 2005.
Aðalfyrirlesari er dr. Scott Henggeler, sem er forvígismaður MST kerfisins, en með honum koma nokkrir samverkamenn við Læknaháskólann í Suður Karólínufylki sem þróað hafa þessa meðferð, ásamt Terje Ogden prófessor við Oslóarháskóla, sem hefur haft með höndum árangursmat á innleiðingu MST í Noregi undanfarin ár. Á ráðstefnunni verður m.a. gerð grein fyrir fræðilegum grunni meðferðarinnar, framkvæmd hennar í Bandaríkjunum og Noregi og þeim árangri sem náðst hefur.
25-40 sjúklingar á LSH verða fyrir skaða í hverjum mánuði
í skriflegu svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu Möller, alþingismanns kemur fram að samkvæmt skráningu í rafrænu atvikaskráningakerfi Landspítala-háskólasjúkrahúss síðustu sex mánuði urðu 100-140 einstaklingar fyrir svokölluðu atviki mánaðarlega.
Frakkar samþykkja lög sem tryggja "réttinn til að deyja"
Í lagatextanum segir að lyfjameðferð megi ekki hafa í för með sér "yfirdrifna áreynslu" og að dauðvona sjúklingurinn geti ákveðið að "afmarka eða stöðva alla meðhöndlun".
Enn vantar fulltrúa Reykjavíkurdeildar á fulltrúaþing Fíh
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga var haldinn þann 15. mars sl. Á dagskrá voru venjuleg aðalfundarstörf og kosning fulltrúa Reykjavíkurdeildar á fulltrúaþing félagsins í maí n.k.
Brýtur blað í sögunni
Pálína Ásgeirsdóttir verður fyrst íslenskra hjúkrunarfræðinga til að gegna starfi yfirmanns spítalahjúkrunarþjónustu Alþjóða Rauða krossins í Genf.
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
