Fréttasafn eftir mánuðum//

31.01.2007  //

Embætti Landlæknis hvetur starfsfólk til að gæta að öryggismálum

Í kjölfar frétta hér á www.hjukrun.is af geilsunarslysi meðal hjúkrunarfræðinga í Noregi, er Landlæknir að skoða málin hér á landi.

31.01.2007  //

Ný von fyrir dauðadæmda búlgarska hjúkrunarfræðinga

Sonur MUAMMAR EL-QADDAFI Líbíuleiðtoga, lofaði um helgina að hjúkrunarfræðingarnir yrðu ekki teknir af lífi.

31.01.2007  //

Danir taka vöntun á hjúkrunarfræðingum alvarlega

Í dag vantar um 1100 hjúkrunarfræðinga í heimiluð stöðugildi í Danmörku og allt stefnir í að sú tala hækki vegna þess fjölda sem fer á lífeyri næstu 10 ár.

31.01.2007  //

Tannheilsa íslenskra barna og unglinga verst á öllum Norðurlöndunum

Kynntar voru í dag fyrstu niðurstöður MUNNÍS - landsrannsóknar á munnheilsu barna á Íslandi - á fundi hjá Lýðheilsustöð.

30.01.2007  //

Framkvæmdastjórn Landssambands eldri borgara lýsir yfir undrun og óánægju með notkun heilbrigðisráðherra á fé

Heilbrigðisráðherra hefur notað rúmlega miljón krónur úr framkvæmdasjóði aldraðra til að kosta útgáfu bæklings um áherslur sínar í öldrunarmálum

30.01.2007  //

Megrunarpilla verður seld í lausasölu í Bandaríkjunum

Bandarísk heilbrigðisyfirvöld hafa veitt heimild fyrir því að megrunarpillan Alli, sem er veikari útgáfa Xenical, verði seld í lausasölu og þar með ekki lyfseðilskyld

29.01.2007  //

Málþing um öryggi sjúklinga

Málþing um öryggi sjúklinga verður haldið á vegum Landlæknisembættisins 8. febrúar næstkomandi á Hótel Nordica. Málþingið er ætlað heilbrigðisstarfsfólki og þeim sem áhuga hafa á öryggi í heilbrigðisþjónustunni. Aðalfyrirlesari er Sir Liam Donaldson, landlæknir Breta.

26.01.2007  //

Annað námskeiði um sár og sárameðferð í samstarfi við Guðbjörgu Pálsdóttur hjúkrunarfræðing

Vegna gífurlega mikillar aðsóknar stendur Fíh fyrir öðru námskeiði um sár og sárameðferð dagana 22. og 23. febrúar frá klukkan 13-19 á fimmtudeginum og frá 8-16 á föstudeginum

19.01.2007  //

8 hjúkrunarfræðingar á hjartadeild sjúkrahússins í Haukeland í Noregi hafa uppgötvast með krabbamein, að öllum líkindum vegna geislunar á vinnustað.

Alls hafa stjórnendur deildarinnar skrá 16 tilfelli krabbameina meðal starfsfólksins. Í skýrslu sinni slær Deild í vinnutengdum sjúkdómum við Háskólann í Bergen því föstu að fyrir átta þessara starfsmanna, séu mestar líkur á að vinnuumhverfið á deildinni sé orsök sjúkdómsins. 3 af þessum átta eru látnir.

19.01.2007  //

Sjúk hús

Danska vinnueftirlitið skrifar um mörg danskra sjúkrahúsa: "Vinnuplássið[...] ber með sér hættu á að innan skamms eða langs tíma verði starfsfólkið fyrir heilsuskaða [...] og vinnuslysum."

18.01.2007  //

Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga kynnt fyrir fjórða árs nemum við HÍ

Þriðjudaginn 16. janúar komu tæplega 50 fjórða árs nemar í hjúkrunarfræði við HÍ á kynningarfund í FÍH. Á fundinum kynnti Elsa B. Friðfinnsdóttir formaður FÍH uppbygging félagsins og fór yfir helstu liði í starfsemi þess.

16.01.2007  //

Beinþynning meðal efnis á læknadögum

Læknadagar 2007 verða haldnir dagana 15. - 19. janúar. Miðvikudaginn 17. janúar verður kastljósinu beint að samfallsbrotum meðal aldraðra undir yfirskiftinni: Hvernig fyrirbyggjum við og meðhöndum byltur og samfallsbrot?

15.01.2007  //

Hátíðarfyrirlestrar fjögurra prófessora við hjúkrunarfræðideild H.Í.

Fyrirlestrar voru haldnir í hátíðarsal Háskóla Íslands 12. janúar í tilefni þess að fjórir kennarar við hjúkrunarfræðideild hafa nýlega hlotið framgang í stöðu prófessors.

11.01.2007  //

Stjórn Fíh ályktar um fjölgun hjúkrunarfræðinema við HA og HÍ

Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) fagnar þeirri ákvörðun stjórnvalda að gera hjúkrunarfræðideildum Háskólans á Akureyri (HA) og Háskóla Íslands (HÍ) kleift að fjölga þeim hjúkrunarfræðinemum sem fá að halda áfram námi eftir samkeppnispróf á 1. námsári.

11.01.2007  //

Hjúkrunarfræðingum finnst fjölmiðlaímynd þarfnast gjörgæslu - Læknar án landamæra og Berlusconi meðal þeirra verstu

The Center for Nursing Advocacy hefur kynnt fjórða lista Gullna lampa verðlaunanna "Golden Lamp Awards," sem eru árlegur listi hópsins yfir bestu og verstu fjölmiðlaframsetningu á hjúkrunarfræðingum. Listi ársins 2006 inniheldur fjölbreytta fjölmiðlun allstaðar að úr heiminum. Læknar án landamæra og Berlusconi komust á listann "Verstir"

10.01.2007  //

Fimmtudagspistill formanns hefur göngu sína á ný

Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður Fíh er nú komin til starfa á ný að afloknu námsleyfi. Hún hefur nú mundað pennann á ný og www.hjukrun.is birtir á morgun fimmtudag fyrsta pistil hennar á árinu þar sem hún veltir vöngum yfir manneklu og launum.

04.01.2007  //

Fíh stendur fyrir námskeiði um sár og sárameðferð í samstarfi við Guðbjörgu Pálsdóttur hjúkrunarfræðing

Námskeiðið verður haldið dagana 7., 8., 12. og 13. febrúar 2007, þ.e. fjögur kvöld frá klukkan 17 - 20:30.

04.01.2007  //

Barnaverndarstofa hefur sent frá sér verklagsreglur um tilkynningarskyldu starfsfólks leik- grunn- og framhaldsskóla til barnaverndarnefnda

Verklagsreglurnar er unnar í samstarfi fulltrúa menntamálaráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitafélaga, Barnaverndar Reykjavíkur og Barnaverndarstofu. Þær varða börn upp að 18 ára aldri og ná því til allra starfsmanna leik- og grunnskóla og fyrstu bekkja framhaldsskóla

04.01.2007  //

Landlæknir hefur með dreifibréfi tilkynnt um breytingu á almennum bólusetningum

Athygli er vakin á því að endurbólusetning við kíghósta hefst nú við 14 ára aldur og að engin bóluefni sem notuð verði innihaldi kvikasilfursambönd. Endurskoðaður hefur verið bæklingur um almennar bólusetningar á Íslandi sem inniheldur m.a. leiðbeiningar um bólusetningu einstaklinga með sögu um ófullkomnar bólusetningar

04.01.2007  //

Uppgjör lífeyrissjóða verða fyrir áhrifum af auknum lífslíkum landsmanna

Meðalævilengd nýfæddrar stúlku hér á landi er nú 82,9 ár og drengs 78,6 ár og hefur aukist um 0,7 ár á tveimur árum. Þetta kemur m.a. fram í nýjum útreikningum um lífslíkur sem Félag íslenskra tryggingastærðfræðinga hefur unnið