Fréttasafn eftir mánuðum//
"Það er krafa dagsins að fátækt verði útrýmt í einu ríkasta landi veraldar"
segir í ávarpi fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík, BSRB, Bandalags háskólamanna, Kennarasambands Íslands og Iðnnemasambands Íslands í tilefni af baráttudegi verkamanna, 1. maí.
Námskeið um ritun fræðslugreina - skráning framlengd
Enn eru laus pláss á námskeið um ritun fræðslugreina sem haldið verður þann 11. maí 2007 og frestur til að skrá sig er framlengdur til 3. maí 2007.
Vefútgáfa apríltölublaðs Tímarits hjúkrunarfræðinga er komin út
Meðal efnis að þessu sinni er umfjöllun um heilabilaða og aðstandendur , fræðslugrein um handþvott og mikilvægi hans fyrir öryggi sjúklinga, leshópar, leið til símenntunar, grein um starfsemi félagsins og kynning á tillögum fyrir fulltrúaþing
4 hjúkrunarfræðingar meðal þeirra starfsmanna sem heiðraðir voru á ársfundi Landspítala háskólasjúkrahúss
Tíu starfsmenn Landspítala - háskólasjúkrahúss voru heiðraðir fyrir vel unnin störf á ársfundi sjúkrahússins í Öskju, náttúrufræðahúsi HÍ fimmtudaginn 26. apríl 2007
Umsóknarfrestur í tveimur námsleiðum í diplómanámi á meistarastigi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands hefur verið framlengdur til 25. apríl nk.
Diplómanám í endurhæfingarhjúkrun Diplómanám í endurhæfingarhjúkrun tekur mið af hjúkrunarfræðingum sem starfa við hjúkrun sjúklinga sem þurfa á endurhæfingu að halda. Diplómanám í hjúkrun langveikra fullorðinna Tilgangur diplómanámsins er að veita hjúkrunarfræðingum tækifæri til að dýpka þekkingu, skilning og færni á hjúkrun fólks með langvinna sjúkdóma.
Samkomulag um breytingu á stofnanasamningi LSH dags. 13. apríl 2007, sem tekur gildi 1. maí 2007.
Í fylgiskjali I með kjarasamningi félagsins og fjármálaráðherra segir orðrétt:
Nýr forstöðumaður Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði
Hildur Friðriksdóttir tók við stöðu forstöðumanns Rannsóknastofnunar í hjúkrunarfræði 1. apríl sl.
Golf-golf-golf-golf-golf
Ágætu hjúkrunarfræðingar. Fyrra golfmót sumarsins 2007 verður haldið föstudaginn 1. júni n.k., eftir hádegi í Golfklúbbi Öndverðaness. Auglýst verður nánar um fyrirkomulag mótsins. Munið að taka frá daginn. Kveðja undirbúningsnefnd.
Örebro University og Linköpings University i Svíþjóð auglýsa styrki
Örebro University and Linköpings University of Sweden are pleased to announce the launch of a five-year project supported to establish a Centre of Gender Excellence-- Gendering Excellence (GEXcel): Towards a European Centre of Excellence in Transnational and Transdisciplinary Studies of Changing Gender Relations, Intersectionalities and Embodiment.
Landlæknisembættið lýsir áhyggjum af öryggi sjúklinga vegna skorts á hjúkrunarfræðingum
Landlæknisembættið segir að skortur á hjúkrunarfræðingum geti ógnað öryggi sjúklinga. Fjölga þarf nemum í hjúkrunarfræði til þess að sporna við manneklunni en um fjörutíu prósent allra starfandi hjúkrunarfræðinga fara á eftirlaun á næsta áratug.
Vinnueftirlitið sendir út dreifibréf vegna árása á starfsmenn
í bréfinu er m.a vakin athygli á þeirri skyldu sem hvílir á atvinnurekanda um að tryggja öruggt og heilsusamlegt vinnuumhverfi starfsmanna sinna.
13 Danir látnir af notkun Viagra
Vandamálið er blóðþrýstingsfall. Doris Stenver, deildarstjóri deildar um neytendaöryggi hjá danska lyfjaeftirlitinu, segir að neytandinn fái ekki nægilegt blóðstreymi til hjartans, sem getur valdið banvænu hjartaáfalli. Hún segir dauðsföllin undirstrika nauðsyn þess að læknir geri áhættumat á sjúklingi áður en hann skrifar út lyfseðil á Viagra.
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga hefur boðað til fréttamannafundar
Vegna nýútkominnar skýrslu félagsins um manneklu í hjúkrun hefur stjórn Fíh boðað til fréttamannafundar. 582 hjúkrunarfræðinga vantar til að leysa úr skorti á íslenskum stofnunum.
Fréttasafn
2013
2012
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2011
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2010
jan, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2009
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2008
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2007
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2006
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2005
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2004
jan, feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
2003
feb, mar, apr, maí, jún, júl, ágú, sep, okt, nóv, des.
